<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T19:53:37" skst="GÞÞ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:55:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:53:37">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Þetta
    eru miklar fréttir varðandi 43 milljarðana því að fjármálaráðuneytið hefur
    sagt að utanríkisráðuneytið sitji á þessum upplýsingum og vilji ekki að
    nefndin fái þær. En gott og vel, guð láti gott á vita. Ráðherra svaraði
    ekki spurningunni um það af hverju því var lofað að hækka ekki skatta. En
    látum það liggja milli hluta. </ns:mgr>

    <ns:mgr>En þetta er ekki útrætt varðandi stöðu Íslands. Ég vek athygli á
    því að þó að ýmislegt hafi nú lekið úr utanríkisráðuneytinu — og
    utanríkisráðuneytið m.a. brotið lög til að koma höggi á ákveðna
    einstaklinga, upplýsingalög — þá er fyrrverandi ráðherra með lögmann í því
    að reyna að fá gögn um það sem gerðist á sínum tíma þegar umrætt bréf var
    sent. Ef við erum umsóknarríki þá er það ákveðin staða. Þá er væntanlega
    enn í gildi samningur Íslands við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins um
    svokallaða IPA-styrki eða aðlögunarstyrki. Ég vek athygli á því að
    Tyrkland sem sótti um aðild að Evrópusambandinu — ég hélt að það væri nú
    steindautt mál. Tyrkland sótti um aðild þegar ég var í menntaskóla, ekki á
    lokaári einu sinni, og hefur fengið gríðarlegar fjárhæðir í IPA-styrki af
    því að það er umsóknarríki. Við hljótum að vilja fá að vita hvað gerðist í
    aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar hér og ég veit að fyrrverandi
    ráðherra hefur gengið svo langt að fá lögmann til að reyna að fá gögnin
    sem hann var að vinna eftir á sínum tíma. Ég bara hvet hæstv. ráðherra til
    að upplýsa um það, það er mjög mikilvægt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>