<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-09-10T19:55:28" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:56:39 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:55:28">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég vil bara aðeins nefna þetta varðandi 1,5%.
    Utanríkismálanefnd og fjárlaganefnd voru upplýstar um greiningu fjármála-
    og utanríkisráðuneytisins á þeim grunnramma sem liggur undir 1,5% af
    vergri landsframleiðslu til varnartengdra verkefna. Fjárlaganefnd hefur
    verið boðinn fundur um 1,5% greininguna og það var gert í kjölfar þess að
    sameiginlegt minnisblað var lagt inn í nefndina í vor. Þetta eru þær
    upplýsingar sem ég hef og ef ekki þá förum við bara í að afla þessara
    upplýsinga. En þetta er það sem ég hef hér hjá mér, að sameiginlegt
    minnisblað frá utanríkisráðuneytinu og fjármálaráðuneytinu hafi verið sent
    til utanríkismálanefndar og fjárlaganefndar og það var óskað eftir frekari
    upplýsingum sem var boðið upp á á fundi með fulltrúum beggja ráðuneyta. Ef
    það er ekki nóg þá er sjálfsagt að fara yfir þetta aftur. <ns:frammíkall/>
    En þetta er það sem er, sýnist mér, líka í málaskrá
    ráðuneytisins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Aðeins að hinu. Ég held að það sé kominn tími til að við horfum
    fram á við. Það er alveg skýrt hver niðurstaðan í þjóðaratkvæðagreiðslunni
    var. Stundum finnst mér eins og stjórnarandstaðan geti ekki komist frá
    þjóðaratkvæðagreiðslunni. Eru þau kannski hrædd við að fara að ræða önnur
    mál, að það sé kannski bara þannig að keisarinn sé ekki í neinum
    fötum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>