<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-09-10T19:58:07" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 19:59:09 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:58:07">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Það var ekkert virkt samtal í gangi fram að
    þjóðaratkvæðagreiðslu. Svo var verið að spyrja þjóðina: Eigum við að hefja
    samningaviðræður á ný? Þjóðin svaraði nei. <ns:frammíkall skst="BergÓ">Það
    er ekki spurningin. </ns:frammíkall>Þjóðin svaraði nei. Þá er ástandið
    bara óbreytt. Það er hins vegar alveg ljóst að ef stjórnarandstaðan vill
    koma með einhverjar tillögur í þessa veru þá gerir hún það. Það er hins
    vegar ekki meiri hluti í þinginu fyrir málinu og mér finnst það áhugavert
    ef stjórnarandstaðan ætlar að beina kröftum sínum í þetta í staðinn fyrir
    að hugsa hvernig hagsmunum Íslands er best borgið <ns:frammíkall/> núna
    þegar við erum að fara í ýmis mál eftir þjóðaratkvæðagreiðslu. Það er
    ákall mitt til stjórnarandstöðunnar: Komið þið í almennilega hagsmunagæslu
    með okkur, standið vörð um EES-samninginn, farið í það að styrkja varnar-
    og öryggishluta, bæði innan NATO og í tvíhliða samskiptum við hin ýmsu
    ríki, sem við erum að gera. Komið og horfið með okkur til framtíðar en
    verið ekki föst í þessum hjólförum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>