<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T19:59:24" skst="SIJ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:01:51 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T19:59:24">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég ætlaði að nota þennan tíma í að spyrja
    hæstv. ráðherra út í 1,5%, þessa 2 milljarða eða 2,4 til varnartengdra
    mála, hvort það væri inni í því, hvar við værum stödd, hvaða önnur
    verkefni, m.a. með NATO sem við hugsanlega þyrftum að fjármagna eða leyfa,
    væru í gangi. En ég verð bara því miður að láta þessa spurningu liggja og
    grípa boltann.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það gengur auðvitað ekki þegar það er þjóðaratkvæðagreiðsla, og
    ríkisstjórn sem segist ætla að virða þá niðurstöðu, að koma með
    útúrsnúninga og halda því fram að bréf sem var sent og augljóslega segir
    að staðan sé óbreytt, þ.e. að um einhvern óendanlegan tíma eigi að byggja
    stöðu Íslands á vinnu sem var unnin 2009 eða 2010 þegar hér var
    efnahagskrísa og bankahrun. Er það grunnurinn að því að einhvern tímann,
    hugsanlega, kannski, ef til vill — ég vona aldrei — vilji þjóðin, og það
    væri meiri hluti í þinginu og samstaða í ríkisstjórn, ganga í
    Evrópusambandið? Á þá að byggja á vinnu frá 2009 og 2010? Það hlýtur að
    vera laukrétt að bregðast við núna með því að draga umsóknina til baka;
    það sé að virða niðurstöðu þjóðarinnar. Og horfa síðan til þess sem
    ráðherrann fór yfir í sinni ræðu, að hér er breyttur heimur og við þurfum
    að horfa til annarra átta. Ég skrifaði grein sem ég held að hafi birst í
    gær eða fyrradag í <ns:skáletrað>Morgunblaðinu </ns:skáletrað>þar sem ég
    var að hvetja ríkisstjórnina og utanríkisráðherra til að horfa til þess að
    stofna hér fríverslunarsvæði norðurslóða með Færeyingum og Grænlendingum á
    grundvelli hugmyndarinnar um Hoyvíkursamninginn, en þó alveg nýtt
    samkomulag. Og horfa enn lengra, til landa eins og Kanada, Bretlands og
    Norðmanna <ns:bjalla/> sem deila þessu svæði með okkur, því allar þjóðir
    heims, öll stórveldi heims, <ns:bjalla/> hvort sem það er Bandaríkin,
    Rússland eða Kína eða Evrópusambandið, horfa vonarhýrum augum til þessa
    svæðis.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>