<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-09-10T20:01:57" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:04:23 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:01:57">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég ætla að fá að vitna hérna í landskjörstjórn.
    Hvað gerist ef meiri hluti svarar nei? Þá hefjast ekki aðildarviðræður við
    Evrópusambandið. Ísland verður ekki aðildarríki að Evrópusambandinu. Það
    er þó ekki útilokað að Ísland hefji aðildarviðræður einhvern tímann í
    framtíðinni. Þetta segir landskjörstjórn, ef nei verður svarið. Þetta er
    val hjá stjórnarandstöðunni að hjakka í þessum hjólförum og það er val sem
    ég virði. Ég bara hvet hana til að koma með okkur. Ég þakka hv. þm.
    Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir að átta sig á að heimurinn er gjörbreyttur
    og hafa skrifað þessa fínu grein. Það er kominn tími til að menn átti sig
    á að tíminn er breyttur. Við verðum að vera með ískalt mat hverju sinni á
    því hvernig við beitum okkur og hvernig hagsmunum Íslands er best borgið.
    Ég veit að hann hlustaði líka af athygli á ræðu mína í gær þar sem ég m.a.
    fór yfir að Kanada, Ísland, Noregur og Bretland ættu að huga að
    sameiginlegri hagsmunagæslu á ákveðnum sviðum, kannski á sviði tollamála í
    tengslum við Evrópusambandið eða líka til þess að verja sig gagnvart alls
    konar viðskiptaþvingunum annars staðar frá. Þetta er það sem við erum að
    hugsa. Við erum löngu farin af stað með umræðu og ég veit að hv. þingmaður
    hlustaði líka áðan, t.d. varðandi Grænland. Það eru bara önnur verkefni
    sem Grænland er að fást við núna. Það liggur fyrir alveg skýr vilji,
    undirstrikaður af forsætisráðherra okkar frá 2025, fyrir því að fara í
    einmitt verkefni á sviði fríverslunar og viðskipta við Grænland og líka
    Færeyjar. En ég viðurkenni það alveg að sambandið núna við Færeyjar er
    frekar kalt af því að fiskveiðisamningar eru lausir. Það er ekki samningur
    á milli Íslands og Færeyja núna og við erum að nálgast þetta í mikilli
    samvinnu við SFS út frá íslenskum hagsmunum. Þá vil ég líka að Hoyvík sé
    tekið inn í það mengi <ns:bjalla/> til að styrkja íslenska hagsmuni. Við
    erum því úti um allt að passa upp á íslenska hagsmuni í samvinnu við
    atvinnulífið, í samvinnu við okkar nánustu bandamenn og það er ýmislegt
    sem við getum gert áfram. Við erum að fara í þessi verkefni. Þið getið
    talað um þjóðaratkvæðagreiðsluna áfram en ég er að fara í þessi verkefni
    fyrir Ísland.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>