<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T20:04:35" skst="SIJ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:06:06 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:04:35">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Já, ég hlustaði af athygli á allar ræðurnar í
    gær og fannst þær misgóðar. Varðandi umræðu um hvernig maður virðir
    niðurstöðu þjóðaratkvæðagreiðslu þá mun ég geta komið því frá mér á þremur
    til fjórum mínútum. Það tekur engan tíma frá fjárlögunum sem eru
    aðalatriði þessa hausts og hvernig við ætlum að takast á við efnahagsmálin
    og hvernig ríkisstjórnin er því miður að klúðra því máli, að ná niður
    verðbólgu og vöxtum í þessu landi, með þeim afleiðingum að atvinnuleysi
    vex og hagvöxtur minnkar. Við erum að ég óttast að stefna í harða lendingu
    í efnahagsmálum, eitthvað sem við vorum búin að reyna að forðast mjög
    lengi. Ég hafði bara ekki tækifæri til þess að ræða það við hæstv.
    forsætisráðherra eða hæstv. fjármálaráðherra í dag. Það er ágætt að koma
    því hér á framfæri. Þannig að það er ekki vandamálið. En ég trúi því ekki
    að hæstv. utanríkisráðherra <ns:bjalla/> vilji hafa þá óvissu uppi eftir
    þjóðaratkvæðagreiðsluna að komi til þess einhvern tímann í framtíðinni, að
    þá eigi að fara að byggja hugsanlega umsókn um aðild að Evrópusambandinu á
    vinnu sem fór fram árin 2009 og 2010 við allt aðrar aðstæður í íslensku
    samfélagi. <ns:bjalla/> Ég trúi því ekki.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>