<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="utanrrh." frhr="0" id="r2026-09-10T20:06:13" skst="ÞKG" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:07:34 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:06:13">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég undirstrika að það er ekki létt verk að snúa
    við hallarekstri ríkisins. Það hefur verið hallarekstur, uppsafnaður, 866
    milljarðar á síðustu átta árum. Löngu byrjað áður en Covid kom yfir okkur
    eins og öll önnur ríki. Agi ríkisins í dag þýðir varanlega betri kjör
    fyrir ríkissjóð og fyrir fólkið í landinu. Það er kominn tími til að við
    tökum þennan plástur af. Það verður sársaukafullt í einhvern tíma en við
    þurfum að gera þetta. Við þurfum að ná jafnvægi í ríkisrekstrinum til að
    tryggja líka velferðarþjónustuna til skemmri og lengri tíma, þannig að það
    sé alveg skýrt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég undirstrika: Þið getið haldið áfram að vera föst í
    þjóðaratkvæðagreiðslunni. Við ríkisstjórnin erum að halda áfram. Við ætlum
    að halda áfram að gæta hagsmuna Íslands á hinum ýmsu vettvöngum og munum
    gera það. Ég sendi í rauninni ákall, m.a. til Framsóknarflokksins, um að
    gera það sem raunverulega þarf að gera, og er undirstrikað af hálfu
    atvinnulífsins, m.a. að EES-samningurinn verði virkur. <ns:bjalla/> Það
    verði stuðningur í þinginu við að gera það sem þarf til að hafa hann
    virkan og til að við uppfyllum okkar skuldbindingar. Ég vona að menn séu
    ekki á harðahlaupum frá þeim skuldbindingum líka.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>