<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-10T20:07:56" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:14:03 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:07:56">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Frú forseti. Hugsum okkur litla 10 ára telpu. Hún mætir í skólann
    á hverjum morgni en hún nær ekki að fylgja hinum börnunum. Hún á erfitt
    með að lesa, hún á erfitt með að einbeita sér og hún er farin að trúa því
    að hún sé einfaldlega ekki nógu góð. Hún horfir niður þegar kennarinn spyr
    spurninga. Hún reynir að láta lítið fyrir sér fara. Hún hættir smám saman
    að leika við hin börnin. Kvíðinn vex. Fólkið í kringum hana sér vandann og
    sækir um greiningu, sækir um aðstoð en svo tekur biðin við. Vikurnar verða
    að mánuðum. Á meðan bíður lífið hennar ekki. Bernskan bíður ekki, kvíðinn
    bíður ekki, skólinn heldur áfram en litla telpan, hún situr
    eftir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Þegar við ræðum fjárlög hættir okkur til að
    tala um milljónir og milljarða. En á bak við hverja krónu, hverja tölu er
    manneskja eða jafnvel lítið barn. En skoðum nokkrar tölur í þessu
    fjárlagafrumvarpi. Hér erum við að leggja til að 1,4 milljarðar kr. fari í
    að styrkja varanlega umgjörðina utan um börn í viðkvæmri stöðu. Þar af fer
    1 milljarður til þess að styrkja rekstur Barna- og fjölskyldustofu og 400
    millj. fara til barna í viðkvæmri stöðu. Við setjum jafnframt viðbótar 800
    millj. kr. í að styrkja þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Framlagið
    kemur til viðbótar 3 milljörðunum sem veittir voru í fjárlögum líðandi árs
    á grundvelli samkomulags ríkis og sveitarfélaga um yfirfærslu á þjónustu
    við börn með fjölþættan vanda frá sveitarfélögum. Við setjum einnig 400
    millj. kr. til stuðnings við börn af erlendum uppruna og áfram munu 700
    millj. kr. renna í farsæld barna. Þessu til viðbótar leggjum við nú til
    nýjar 350 millj. kr. í að stytta biðlista og efla starfsemi Ráðgjafar- og
    greiningarstöðvar. Það er með öllu óásættanlegt að barn bíði mánuðum saman
    eftir nauðsynlegri greiningu. Börn og biðlisti; þetta eru tvö orð sem eiga
    ekki heima í sömu setningu. Við ætlum því að stytta þessa bið og við ætlum
    að grípa börnin fyrr, ekki þegar þau eru fallin. Við ætlum að grípa þau
    áður en þau falla.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við ætlum líka að halda áfram að vinna að byggingu nýs
    meðferðarheimilis í Garðabæ. Jafnframt er ég að leggja til mestu
    breytingar á barnaverndarlögum á síðastliðnum 20 árum. Ég mun einnig
    leggja til fyrstu aðgerðaáætlun stjórnvalda gegn fátækt barna. Verkefnin
    verða varla stærri en svo.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Íslenska framhaldsskólakerfið stendur frammi fyrir
    margvíslegum áskorunum. Nær 99% allra ungmenna innritast nú í
    framhaldsskóla og árgangur þessa vetrar er óvenjufjölmennur. Þá hefur
    fötluðum nemendum á starfsbrautum fjölgað mikið undanfarin ár sem og
    nemendum með erlendan bakgrunn. Enn eru of margir framhaldsskólar með
    halla á sínum rekstri. Í þessu frumvarpi koma hins vegar nýjar 300 millj.
    kr. inn til að mæta nemendafjöldanum. Framhaldsskólarnir hafa um árabil
    búið við miklar aðhaldskröfur á sama tíma og stórir árgangar hafa komið
    inn í skólana. Það aðhald byrjaði svo sannarlega ekki hjá þessari
    ríkisstjórn. Við ætlum að setja 55 milljarða í framhaldsskólana á næsta
    ári en fjármagn til reksturs og fjárfestinga er það sama í
    fjárlagafrumvarpinu og er á þessu ári. Sé eingöngu litið til fjármagns til
    rekstrar þá lækkar það einungis um 1,2% á milli ára. Við þurfum því að
    fara vel með fjármunina og við þurfum að nýta þá skynsamlega. En ég segi
    það alveg skýrt: Betri nýting má aldrei verða fínt orðalag yfir verri
    þjónustu við nemendur. Hins vegar er mikilvægt að líta til framtíðar og sé
    litið til fimm ára tímabils fjármálaáætlunar þá munu fjárveitingar á hvern
    framhaldsskólanema verða svipaðar í lok áætlunar og nú árið 2027.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Talandi um framtíðina þá þurfum við að ná betur utan um börnin
    okkar. PISA-niðurstöðurnar bera þess glöggt vitni. Á næsta ári verður
    settur meiri kraftur í útgáfu námsgagna og í kennslu raunvísinda. Þess
    vegna munu nú fara samanlagt 675 millj. kr. í námsgögn og í áherslu á
    STEM-greinar. Önnur eins innspýting í námsgögn og í raunvísindi hefur ekki
    sést lengi. Á sama tíma höldum við áfram stórsókn í verknámi. Ný aðstaða í
    Fjölbrautaskólanum í Breiðholti verður opnuð nú í vetur og áfram er unnið
    að stækkun Fjölbrautaskóla Suðurnesja, Verkmenntaskólans á Akureyri,
    Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og Menntaskólans á Ísafirði. Enn
    stendur til að stækka Tækniskólann í einum áfanga í stað tveggja og loks
    er Þjóðarhöllin fullfjármögnuð upp að 17 milljörðum kr. <ns:bjalla/> en á
    næsta ári verða 1,2 milljarðar lagðir í verkefnið. Þar mun rísa glæsileg
    aðstaða fyrir landsliðið okkar, íþróttafólkið, skóla og almenning.
    Markmiðið er að höllin verði tilbúin fyrir heimsmeistaramótið í handbolta
    árið 2031.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Fjárlög eru ekki bara talnadálkar. Þau eru yfirlýsing
    um gildismat okkar og stefnu um það að sérhvert barn skiptir máli.
    <ns:bjalla/> Með þessum fjárlögum vil ég því segja við litlu stúlkuna tíu
    ára gömlu sem ég minntist á í byrjun míns máls, og við öll börn í hennar
    stöðu, að við ætlum ekki að láta þau bíða ein í myrkrinu. <ns:bjalla/> Við
    ætlum að taka utan um börnin og gefa þeim tækifæri til að blómstra á eigin
    forsendum. Það er samfélagið sem ég vil byggja og það er framtíðin sem
    þessi ríkisstjórn ætlar að berjast fyrir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Frú forseti. Ég biðst innilega afsökunar hvað ég las — nei, herra
    forseti, afsakið — þetta hægt hérna í byrjun.</ns:mgr>

    <ns:mgr><ns:forseti skst="BergÓ">Hvort sem það er herra eða frú forseti þá
    viljum við biðja hæstv. ráðherra að virða tímamörk, rétt eins og
    þingmenn.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>