<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T20:14:17" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:16:30 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:14:17">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Nýjustu PISA-niðurstöðurnar eru enn eitt rauða
    spjaldið á íslenskt menntakerfi. 44% nemenda eru ekki með grunnfærni í
    lesskilningi, tæplega annað hvert barn. En þetta snýst um miklu meira en
    niðurstöður úr prófi. Barn sem býr ekki yfir nægilega góðum orðaforða og
    lesskilningi á erfiðara með að afla sér upplýsinga, túlka þær, orða
    hugsanir sínar, tilfinningar og skoðanir og taka sjálfstæðar ákvarðanir.
    Lesskilningur er ein af undirstöðum þess að geta tekið fullan þátt í
    lýðræðissamfélagi eins og grunnskólalög kveða á um. Við erum að tala um
    tæplega 2.000 börn á ári sem yfirgefa grunnskólann án þessarar grunnfærni.
    Ég tek undir orð ráðherra um að það séu einstaklingar á bak við þessar
    tölur og þess vegna skýtur skökku við að þegar fjárlagafrumvarpið er
    skoðað sé engin raunaukning í fjárheimildum ríkisins til leik- og
    grunnskólastigsins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hæstv. ráðherra bendir réttilega á að 380 millj. kr. nýtt framlag
    til námsgagna komi inn. Ég fagna því. Við þurfum miklu meira af vönduðum
    íslenskum námsgögnum. Frumvarpið segir líka alla söguna. Þar stendur að
    heildarfjárheimildir ríkisins í málaflokki leik- og grunnskóla verði 1.672
    millj. kr. og taka ekki breytingum, svo ég vísi beint í frumvarpið, ekki
    breytingum frá gildandi fjárlögum að frátöldum almennum launa- og
    verðlagsbreytingum. 380 millj. kr. fyrir námsgögn og 400 millj. kr. vegna
    barna af erlendum uppruna, eins og hæstv. ráðherra nefndi áðan, sem er
    gott. En á móti falla niður 780 millj. kr. í tímabundnar fjárheimildir.
    Þarna stemma tölurnar. Þegar við drögum þær frá hvor annarri er
    niðurstaðan eitt stórt núll eins og teiknað var hér á flottum fundi fyrir
    ekki mörgum dögum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þegar 44% barna ná ekki grunnfærni í lesskilningi og hæstv.
    ráðherra hefur sjálfur gefið málaflokknum rauða spjaldið, hvernig getur þá
    svarið í fjárlögum verið engin raunaukning til leik- og grunnskólans? Ég
    spyr hæstv. ráðherra sem ég veit að af einlægni vill gera vel en við
    verðum að gera betur en þetta.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>