<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-10T20:16:42" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:18:49 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:16:42">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Jóni Pétri Zimsen fyrir
    spurningarnar. Hann er náttúrlega alltaf með puttann á púlsinum, það er
    ekki sökum að spyrja. Það er allt rétt sem hv. þingmaður segir: það eru
    verkefni að vinna hvað lýtur að PISA. Við erum hér með tíu aðgerða áætlun
    til að koma til móts við börnin okkar og ég ætla ekki að tíunda það því að
    hv. þm. Jón Pétur Zimsen var með mér í gær þegar við vorum að kynna
    niðurstöðurnar og þekkir það mjög vel.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þegar við erum að tala um námsgögnin, jú, það verða um 380
    milljónir af þessu fé, sem ég er að fara að setja í námsgögn, sem fara í
    námsgögn til grunnskólanna. Það sem hefur verið að gerast upp á síðkastið
    og þess vegna eru kannski tölurnar ekki að breytast svo mikið milli ára og
    í fjármálaáætlun, auðvitað verður breyting í fjármálaáætlun ef þurfa
    þykir. En staðreyndin er sú að það mun ekkert barn verða skilið eftir og
    við munum greiða sömu krónutölu fyrir öll börn og við munum greiða fyrir
    öll börn eins og við höfum gert hingað til. Það liggur alveg fyrir. En það
    hafa komið inn óvenjustórir árgangar barna og það er talið að frekar muni
    þeim fækka en fjölga. Það er kannski þess vegna sem þessir útreikningar
    hafa verið eins og þeir eru. En við erum að fá hér inn um 600 milljónir
    sem koma til móts við þær ríflega 700 milljónir sem hv. þingmaður er að
    benda á. Ég held að þegar upp er staðið séum við á góðum stað. Við ætlum
    núna að taka saman höndum í hagræðingu og betra skipulagi þannig að við
    munum ekki standa höllum fæti á eftir. Ég tel að það muni ekki verða svo.
    En hagræðingarkrafa er til staðar upp á 1,2%, hér eins og annars staðar,
    og við munum standa hana af okkur og ég ber lítinn kvíðboga fyrir því ef
    satt skal segja.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>