<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T20:18:55" skst="JPZ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:20:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:18:55">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég vil þakka hæstv. ráðherra fyrir einlægt
    ágætissvar. Mig langar aðeins að venda kvæði mínu í kross. OECD sagði um
    Ísland í fyrra að meira en 40 stiga lækkun á meðalárangri PISA frá
    2006–2022 gæti dregið úr heildarframleiðni um meira en 5% sem eru u.þ.b.
    280 milljarðar. Við erum að tala um smáaura hér í öðrum umræðum. Frændur
    okkar á Norðurlöndunum hafa allir boðað til neyðarfunda og ríkisstjórnir
    komið saman út af niðurstöðunum á Norðurlöndunum. Danir, Svíar, Norðmenn,
    þetta er í öllum fjölmiðlum. Það er stanslaust verið að tala um þetta. Það
    eru fundir úti um allt. Forsætisráðherra, fjármálaráðherra og
    menntamálaráðherra. Menntamálaráðherra er ekki skilinn eftir einn úti á
    berangri eins og hér á Íslandi. Íslendingar eru í miklu verri stöðu en
    Norðurlöndin grípa til þessa ráðs og þau sjá það að æska landsins skiptir
    meira máli en svo að málið sé þagað í hel af öðrum ráðherrum en mennta- og
    barnamálaráðherra.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mín spurning er því sú til hæstv. mennta- og barnamálaráðherra
    hvort henni sé ekki kalt þarna einni úti. <ns:bjalla/> Ég vil líka spyrja
    hvort ekki sé neinna annarra viðbragða að vænta frá ríkisstjórninni
    varðandi málið en það að skilja mennta- og barnamálaráðherra einan eftir
    úti til að svara fyrir málið, <ns:bjalla/> á meðan ríkisstjórnir
    Norðurlandanna koma saman, halda blaðamannafundi, eru búnir að skipuleggja
    málþing langt fram í tímann. <ns:bjalla/> Við sjáum á hvaða stað íslensk
    menntamál eru, metnaðarleysið og áhugaleysið er algert, fyrir utan
    einstaka ráðherra og þingmenn hér í salnum.</ns:mgr>

    <ns:mgr> <ns:forseti skst="BergÓ"> Forseti minnir þingmenn á að virða
    ræðutíma.</ns:forseti></ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>