<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-10T20:20:50" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:22:08 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:20:50">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég tek undir með hv. þingmanni að ástandið er mjög
    alvarlegt. Ég lít á það sem er að gerast á hinum Norðurlöndunum í kringum
    okkur sem kannski frekar í beinu framhaldi af því að þau hafa í rauninni
    ekki fengið annan eins skell, eins og núna. Þau í rauninni hrundu mun
    meira í þessum PISA-könnunum en við. Það er margt mjög jákvætt sem kemur
    fram með börnin okkar hvað varðar PISA og þá sérstaklega hvað lýtur að,
    virðist vera, ánægju þeirra og vellíðan í skólanum sínum. En staðreyndin
    er sú að við erum enn að skrapa botninn og þetta á við um fleiri lönd en
    bara Norðurlöndin, Spán og meira og minna öll löndin sem PISA náði utan um
    eru í dálítið miklu sjokki. En við erum að spyrna okkur upp frá botni, hv.
    þingmaður, og ég tek heils hugar undir að það er verk að vinna og ég hef
    flaggað rauðu spjaldi. Það er því langt frá því að mér sé sama og ég bind
    miklar vonir við það að símafriðurinn okkar og bætt aðgengi barnanna okkar
    að náminu eigi eftir að snúa þessari ömurlegu þróun til betri vegar. Ég sé
    í rauninni ljósið við enda ganganna, hv. þingmaður, og ég hlakka til að
    sjá þann árangur sem við stefnum að.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>