<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T20:22:19" skst="GAS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:24:14 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:22:19">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Síðastliðna tvo áratugi hefur árangur íslenskra
    nemenda dalað í svokölluðum PISA-könnunum. Allt frá því að grunnskólar
    voru færðir frá ríki til sveitarfélaga árið 1996 hafa verið ýmis teikn á
    lofti og ákall um aukinn stuðning við grunnskóla landsins. Birtar hafa
    verið margar skýrslur er snúa að námsgögnum. Maður finnur skýrslu frá 2005
    þar sem kallað er eftir endurnýjun námsgagna. Við erum með skýrslur frá
    2023 þar sem farið er yfir 25 ára yfirfærslu grunnskóla frá ríki til
    sveitarfélaga þar sem einn af rauðu þráðunum er skortur á námsgögnum og að
    ríkið hafi ekki staðið sig nægilega vel við að styðja við grunnskóla
    landsins með því að gefa út ný námsgögn sem henta nemendum í breyttu
    samfélagi. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvaða skref eigi að stíga
    á næsta ári til að mæta þessari uppsöfnuðu þörf fyrir námsgögn sem
    menntamálaráðherrar síðustu áratuga virðast ekki hafa náð að svara. Hvað
    hyggst ráðherrann gera?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Við höfum rætt mikið um þessar PISA-niðurstöður hér í þingsal en
    kannski meira í fjölmiðlum. Við höfum verið að stíga þessi skref. Ráðherra
    lagði til frumvarp um matsferil. Hún hefur lagt fram frumvarp um símafrí.
    Hún hefur boðað frumvarp um að setja auknar hömlur á samfélagsmiðla, boðað
    átak í svokölluðum STEM-greinum til að byggja undir raunvísindaþekkingu
    nemenda og hún hefur einnig lagt til mál sem snúa að því að styðja við
    íslenskukennslu nemenda af erlendum uppruna. Þetta þykir mér ansi
    myndarlegur listi í bland við það að ég heyri að það á að fara í sókn í
    námsgögnum, eitthvað sem hefur ekki gengið upp síðustu áratugi. Er
    eitthvað meira á þessum lista sem hún myndi vilja draga fram, sérstaklega
    þetta með námsgögnin?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>