<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-10T20:24:21" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:26:40 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:24:21">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir góðar spurningar. Ég
    er mjög stolt af því að segja að við erum að fara að veita samtals 675
    millj. kr. í ný námsgögn, í stuðning við útgáfu námsgagna. Samanlagt eru
    455 millj. kr. að fara — það fara 380 millj. kr. í grunnskólana. Námsgögn
    verða 455 milljónir því að við erum líka að setja 75 milljónir í námsgögn
    í framhaldsskólana. Svo koma 220 millj. kr. til að efla STEM-greinarnar.
    Við erum að fara að taka til í því og efla sérstaklega
    raunvísindagreinarnar, stærðfræði og þær greinar þar sem við erum mjög á
    eftir. Samanlagt eru þetta um 675 milljónir. Ný STEM-viðmiðunarbraut
    verður í samstarfi við framhaldsskóla og háskóla og stefnt er að sérstakri
    fjármögnun brautanna í reiknilíkani framhaldsskólanna árið 2028.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hv. þingmaður nefnir ástandið sem hefur skapast vegna PISA og hvað
    við ætlum að gera til að reyna að ná utan um stöðuna. Jú, það er mjög
    margt og ég bind miklar vonir við að símafríið, sem við erum að fara að
    veita börnunum okkar, muni skipta sköpum. Til gamans get ég sagt að
    starfsmaður í ráðuneytinu á yndislega konu sem er kennari. Þegar hún var
    að undirbúa kennsludaginn sinn í fyrradag skildi hún ekkert í því hvað það
    var mikið fjör frammi á gangi, hávaði og læti sem hún hafði ekki heyrt
    áður. Hún kannaðist ekki við þennan óróa í skólanum þannig að hún fór fram
    og kíkti og þá voru krakkarnir hreinlega hlaupandi um að leika sér og hafa
    gaman saman. Þau sátu ekki undir vegg að skrolla á símanum sínum. Það er
    grundvallaratriði, finnst mér, og ég legg mikla áherslu á það, að börnin
    okkar fái frið fyrir áreiti á skólatíma þannig að við fáum að uppskera það
    sama og Finnar gerðu t.d. eftir hálft ár í sínum símafriði, sem var
    stórkostlegur árangur. Ég get fylgt þessu eftir í seinna andsvari við hv.
    þingmann.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>