<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T20:26:47" skst="GAS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:27:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:26:47">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svörin. Ég tek
    undir það að það verður spennandi að fylgjast með því hvaða árangri allar
    þessar aðgerðir munu skila. En það sem er mest spennandi við það er að nú
    erum við ekki bara að fara að bíða eftir næstu PISA-könnun. Ég held að
    þetta sé hugsanlega eitt stærsta skrefið sem við höfum verið að stíga á
    síðustu árum, þ.e. innleiðing matsferils sem við ætlum að leggja á hverju
    ári fyrir nemendur okkar þannig að við sjáum strax frá ári til árs hvað er
    að virka, hvar við þurfum að sækja fram o.s.frv. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég vil nýta tækifærið nú í seinna andsvari, þar sem mér finnst
    ráðherrann hafa farið vel yfir þessa málaflokka, og spyrja út í
    hjúkrunarrými. Það bárust nýlega fréttir af því að staðan á Landspítala
    hefði ekki verið jafngóð á allri þessari öld vegna uppbyggingar
    hjúkrunarrýma og að ekki séu lengur þessir biðlistar af fólki sem er að
    bíða eftir að komast í hjúkrunarrými, fólki sem hefði þurft að bíða inni á
    Landspítala. Þetta eru gleðifréttir. Mig langar því einfaldlega að spyrja:
    Á að halda áfram í þessu þjóðarátaki í umönnun eldri borgara eða telur
    ráðherrann að búið sé að byggja nægilega mörg hjúkrunarrými nú
    þegar?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>