<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-10T20:28:02" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:29:11 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:28:02">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. En
    nei, við erum sannarlega ekki að hægja á uppbyggingu hjúkrunarrýma. Það
    liggur alveg fyrir að við munum núna á næstu tveimur árum sennilega að
    opna vel á sjötta hundrað hjúkrunarrými og við höldum ótrauð áfram. Við
    erum að fara að byggja hér um 1.500 hjúkrunarrými, þar af 1.400 ný. Tæp
    90% af þeim eru komin í ferli þannig að við munum ekki láta deigan síga.
    Það er markmiðið að á tíma þessarar framkvæmdaáætlunar verði enginn á bið,
    hvorki á heilbrigðisstofnunum né heima. Þeir einu örfáu sem á bið verða —
    miðað við að við tökum auðvitað inn í dæmið þá miklu fjölgun eldra fólks
    sem er að raungerast — þeir sem bíða eftir varanlegu búsetuúrræði á
    hjúkrunarheimili munu vera í svokölluðu biðrými eins og t.d. á
    Vífilsstöðum eða fleiri slíkum stöðum sem veita algerlega sambærilega
    þjónustu. En það er bjart fram undan, aldrei verið bjartara á þessari öld,
    það er rétt.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>