<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T20:29:21" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:31:11 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:29:21">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég ætla að byrja á að hrósa hæstv. mennta- og
    barnamálaráðherra fyrir það að hafa stigið svona fast inn í það að
    tölustafir yrðu aftur teknir upp í skólum landsins. Hins vegar óttast ég
    að hæstv. ráðherra hafi ekki ætlað sér annað en að tölustafurinn 8 myndi
    þýða 8 í einkunn og 9 myndi þýða 9. Nú berast þær fréttir úr skólum
    landsins að svo sé ekki, heldur sé einhvers konar viðmið tengt bókstöfum.
    Kennararnir sjálfir vita ekki hvernig þeir eiga að vinna með þetta. Okkur
    er sagt, foreldrum, að þetta hafi sennilega ekki verið hugmyndir hæstv.
    ráðherra og því vil ég spyrja hæstv. ráðherra: Er þetta rétt? Getur hæstv.
    ráðherra útskýrt hvernig þetta nýja kerfi virkar? Ef einkunnin 8 á bara að
    þýða 80% rétt, af hverju eru starfsmenn menntamálaráðuneytisins þá að
    útskýra þetta öðruvísi fyrir skólum landsins? </ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta var fyrri spurningin og af því að ég hef smá meiri tíma
    langaði mig að spyrja hæstv. ráðherra, af því að hún er nú forystukona í
    ríkisstjórninni, hvort hún geti sagt okkur það sem hæstv.
    utanríkisráðherra gat ekki sagt okkur áðan: Hver er staða á umsókn Íslands
    þegar kemur að aðild að Evrópusambandinu? Erum við umsóknarríki? Er hún
    virk? Hver er þessi staða sem hæstv. utanríkisráðherra segir að sé sama
    staða og fyrir atkvæðagreiðsluna? En ég veit ekki hver sú staða
    er.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>