<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-10T20:31:17" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:33:52 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:31:17">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég vil byrja á því að þakka hv. þm. Önnu Margréti
    Gunnlaugsdóttur fyrir sínar spurningar og býð henni bara í heimsókn upp í
    ráðuneyti þar sem ég mun sýna henni það svart á hvítu að 8 verður 8 og 9
    verður 9. Hins vegar erum við að innleiða þetta ferli akkúrat núna og það
    kemur ekki til framkvæmda fyrr en í vor. Það verða hæfnisviðmið. Það er
    þannig að á bak við 8 í íslensku er kannski lesskilningur, málstíll,
    stafsetning og ýmislegt annað, eins og hefur alltaf verið. Þannig eru
    kannski 20% af einkunninni 8 lesskilningur og önnur 20% verða kannski
    ritun og annað slíkt. Það hefur alltaf verið svo. Það sem mér hefur
    fundist frekar vefjast fyrir fólki, og ég get bætt því við, er af hverju
    tölurnar 1, 2 og 3 eru ekki gefnar í einkunn. Það er það sem ég hef heyrt
    en ekki það að 8 verði ekki 8, af því að það er einhver stórkostlegur
    misskilningur, 8 verður alltaf 8. En við munum ekki gefa einkunnir undir 4
    heldur verður 1–4 bara óstaðið vegna þess að, ólíkt því sem áður var,
    ætlum við ekki að fella 10. bekkinga. Þau fá að fylgja sínum jafnöldrum út
    í framhaldsskólana þar sem þau eiga að fá að njóta sérstaks stuðnings
    miðað við það að þeirra námsframvinda var ekki talin nægjanleg til að geta
    setið við sama borð og allir aðrir sem höfðu hlotið hærri einkunnir. Við
    ætlum að taka utan um þau þar sem þau eru. Ég segi: Menntun fyrir alla. Ég
    vil mæta börnunum þar sem þau eru og ég er stolt af því að við skulum ekki
    láta þau sitja eftir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En hvort við erum í þessari þjóðaratkvæðagreiðslu, sem mér finnst
    eiginlega ekki eiga heima undir fjárlögunum og því sem ég er að ræða hér
    um menntakerfið, þá get ég nú bara einfaldlega sagt það að ég kom sjálf
    með tillögur að því að draga formlega til baka þessa aðildarumsókn sem
    Miðflokkurinn sagði að væri þegar dregin til baka og var víst nóg að
    skrifast á við Brussel. Hér vildi enginn líta við þessari hugmyndafræði
    minni yfirhöfuð. Sat ég bara uppi ein með hana, þó að önnur taktík sé að
    detta upp úr skúffunni núna og þér að segja, hv. þingmaður, þá bara skipti
    ég mér ekki af málinu. Ég er bara glöð að hafa staðið við að þessi
    þjóðaratkvæðagreiðsla fór fram. Skilaboðin voru skýr, það var greitt
    atkvæði um eitt: Viljum við halda áfram aðildarviðræðum eða ekki? Svarið
    var skýrt. <ns:bjalla/> Það var nei, við erum ekki að fara að halda áfram
    aðildarviðræðum.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>