<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T20:33:59" skst="NMG" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:35:17 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:33:59">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Já, nú er ég eiginlega aðeins ruglaðri eftir þetta
    svar. Erum við þá að tala um að einhver fær einkunnina 5 og einhver sem
    ætti að fá 1 fær kannski 5 líka, þannig að sá sem kann helminginn af
    námsefninu fær sömu einkunn og sá sem kann 10%? Ég skil alveg að hæstv.
    ráðherra vilji gefa öllum tækifæri á að komast í áframhaldandi nám þótt
    það hafi ekki gengið nógu vel í 10. bekk. En það er kannski allt í lagi að
    sá sem tekur við nemandanum viti hvort hann sé með 10% kunnáttu eða 50%.
    Þannig að já, ég held að þetta þurfi eitthvað að skýrast betur.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan langaði mig að koma aðeins inn á hjúkrunarrýmin af því að ég
    vil líka hrósa hæstv. ráðherra fyrir að setja þau í forgang. En hæstv.
    ráðherra hefur sagt að það muni enginn vera á bið eftir hjúkrunarrýmum
    þegar áætlunin verður komin á enda. En svo stendur í smáa letrinu að
    enginn á bið þýði einungis að 75% fái pláss vegna þess að þetta miðist við
    viðmið ríkisstjórnarinnar um að 75% einstaklinga fái pláss. Þannig að: Eru
    það 75% eða 100% sem komast inn í hjúkrunarrými?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>