<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-10T20:35:23" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:36:38 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:35:23">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvarið. Ef
    það hefur eitthvað vafist fyrir hv. þingmanni þá erum við t.d. búin að
    taka út bókstafina. Það er ekki lengur þannig að B gildi 5–8 eða eitthvað
    slíkt. Við erum ekki að brjóta börn niður með því að gefa þeim 2 í einkunn
    eða 3 í einkunn. Það er bara óstaðið, þannig að við gefum þeim tækifæri
    til að komast upp. Þau eru stjörnumerkt og fá í raun sína greiningu miðað
    við sína stöðu strax og þau koma upp í framhaldsskólann og þar á að vera
    tekið utan um þau á þeirra forsendum. Það er aldrei svo að einstaklingur
    sem er stjörnumerktur og hefur hugsanlega fengið einkunnina 2, sem ekki
    verður sett á blaðið, — við fengum nú alltaf 1 bara fyrir að skrifa nafnið
    okkar á prófið í gamla daga jafnvel þó að það væri fátt um svör — hann
    verður algerlega tekinn í fangið og ég mun sjá til þess að svo verði. Það
    er mikill munur á því. Sá sem fær 5, hv. þingmaður, hefur staðið og hann
    fer bara inn í venjulega bekkinn sinn og er ekkert sérstaklega
    stjörnumerktur eða talin sérstök ástæða til þess að taka utan um hann nema
    það sé eitthvert eitt fag eða annað fag sem er sérstaklega óskað eftir að
    fá stuðning við. En að öðru leyti er þetta bara verulega fallegur dagur,
    hv. þingmaður.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>