<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T20:36:50" skst="SandrS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:38:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:36:50">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Mig langar að þakka hæstv. ráðherra fyrir sína
    framsögu hér í dag og ég held að við ráðherrann séum sammála því að
    menntun sé undirstaða alls í samfélaginu, undirstaða hagsældar og
    verðmætasköpunar til framtíðar. Hv. þm. Guðmundur Ari Sigurjónsson fór hér
    yfir myndarlegan lista sem ráðherra er búinn að framkvæma eða hyggst
    framkvæma, sem er mjög gleðilegt.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Nýleg PISA-niðurstaða gefur okkur ákveðna vísbendingu um hver
    staðan er og ég veit að ráðherra mun beita sér af fullum þunga til að bæta
    þessa stöðu. En í fjárlagafrumvarpinu sem og í nýrri atvinnustefnu
    stjórnvalda er lögð áhersla á að efla STEM-menntun og aðgengi að
    STEM-námsefni í leik-, grunn- og framhaldsskóla en þar er m.a. gert ráð
    fyrir fjárveitingum til námsgagnaútgáfu í samstarfi við MMS.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í ljósi þess að undanfarin ár hefur byggst upp mikilvæg innlend
    STEM-þekking á Íslandi, gegnum STEM Ísland, vakna spurningar um hvort og
    þá hvernig ráðherra hyggist nýta þá þekkingu sem hefur skapast hér en
    reynsla undanfarinna ára sýnir að STEM-menntun verður ekki innleidd og
    efld með einangruðum aðgerðum heldur með því að byggja upp samhæft og
    staðbundið vistkerfi þar sem sveitarfélög, háskólar og atvinnulífið vinna
    öll saman. Þannig að mín spurning til ráðherra er: Mun ráðherra leggja
    áherslu á þessa vistkerfisnálgun eða er einungis verið að tala um
    námsgögnin? Svo kannski í framhaldinu, hefur STEM-menntastefna eitthvað
    verið skoðuð, af því að þetta er nefnt sérstaklega í atvinnustefnunni og
    svo í fjárlögunum? Og í lokin: Telur ráðherra að STEM-menntastefna gæti
    haft áhrif á niðurstöður PISA og hjá íslenskum börnum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>