<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-10T20:39:00" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:41:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:39:00">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég vil byrja á að segja að niðurstöður PISA eru
    auðvitað viðvörun sem ber að taka alvarlega. Svarið er hins vegar ekki
    eitt skammtímaátak heldur skýr stefna og markviss eftirfylgni. Við þurfum
    að styrkja grunnfærni, lestur íslensku, stærðfræði, raun- og tæknigreinar,
    bæta í námsgögn, innleiða símafriðinn og styrkja starfsþróun kennara og fá
    foreldra með okkur í verkefnið.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Varðandi STEM-greinar vil ég segja það skýrt: Við þurfum vissulega
    betri námsgögn en við þurfum líka að byggja upp heildstætt umhverfi þar
    sem skólar, sveitarfélög, atvinnulíf og samfélagið allt vinna saman. Við
    eigum að nýta þá þekkingu og innviði sem þegar hafa byggst upp hér á
    landi, m.a. í gegnum STEM Ísland en ekki alltaf byrja frá grunni. Það er
    ánægjulegt að segja frá því að ríkisstjórnin hefur sett sérstaka áherslu í
    atvinnustefnu sinni á STEM. Við sjáum að t.d. stúlkunum okkar hefur hrakað
    allverulega í nýjustu PISA-könnun í stærðfræði, meira en drengjunum t.d.
    Þeim hefur hrakað líka meira á öðrum sviðum. Við sjáum að staðan er mjög
    alvarleg. Það er bara spurningin um hvenær við verðum búin að ná utan um
    þá árganga sem annars þurfa að ganga í gegnum þetta sem börnin okkar eru
    að ganga í gegnum núna, sem eru að útskrifast úr 10. bekk þar sem
    helmingur drengja er með það slæman lesskilning að þeir eiga litla
    möguleika á því að fara í erfiðara og þyngra nám. Það eru því mörg
    verkefni. Það eru líka risastór verkefni sem ég get bætt við hér og það
    eru líka risastór verkefni sem lúta einmitt að þeim hópi sem stendur svona
    illa eftir tíu ára grunnskólagöngu og hvort við sem samfélag getum gert
    eitthvað til að taka utan um það og veita þessum einstaklingum
    tækifæri.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar bara til að segja við þingheim okkar allan eins og hann
    leggur sig: Þetta mál, börnin okkar, á ekki að vera pólitískt.
    <ns:bjalla/> Þetta á að vera vilji okkar allra til verksins og ég hef
    fulla trú á því að við eigum eftir að sýna það og sanna í þessum sal hvers
    við erum megnug þegar við ætlum að gera vel.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>