<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T20:41:34" skst="SandrS" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:43:01 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:41:34">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Kærar þakkir fyrir þetta, ráðherra. Mig langar
    að beina sjónum mínum aðeins að íþróttum og Þjóðarhöllinni. Ráðherra
    byrjaði framsögu sína á að tala um litlu stúlkuna og er kannski búin að
    svara svolítið af þessari spurningu sem ég er að bera upp núna, en engu að
    síður er þátttaka í skipulögðu íþróttastarfi er eitt öflugasta
    forvarnatækið sem við höfum. Þar fá börn og ungmenni tækifæri til að
    tilheyra hópi, eignast vini og upplifa árangur og ábyrgð. Öflugt
    íþróttastarf getur einnig haft áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu.
    En eins og við komum inn á áðan geta íþróttir líka létt álagi af
    skólakerfinu, heilbrigðiskerfinu og velferðarkerfinu. Í þessu
    fjárlagafrumvarpi er gert ráð fyrir 4,4 milljörðum í málaflokk íþrótta- og
    æskulýðsmála og þar af 2,4 milljörðum í Þjóðarhöllina. — Ég þarf að stytta
    mál mitt hérna aðeins.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Spurning mín til hæstv. ráðherra er: Telur ráðherra að við séum að
    horfa á íþróttir sem fjárfestingu í forvörnum og lýðheilsu í þessu
    frumvarpi? Hvernig horfir það við íþróttastarfi á landsbyggðinni? Getur
    Þjóðarhöllin markvisst dregið úr álagi og kostnaði í skólakerfinu og
    heilbrigðiskerfinu, svolítið eins og í dæminu um litlu stelpuna sem
    ráðherra talaði um í upphafi?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>