<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-10T20:43:08" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:44:34 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:43:08">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni síðara andsvar. Hvað
    íþróttir varðar er ég hjartanlega sammála hv. þingmanni. Íþróttastarf er
    ekki aðeins tómstundastarf heldur er það öflugt forvarnastarf,
    lýðheilsustarf og félagslegt úrræði. Þjóðarhöll er mikilvæg fjárfesting en
    hún má aldrei verða öll íþróttastefna okkar. Börn um allt land þurfa að
    hafa raunveruleg tækifæri til þátttöku óháð búsetu eða efnahag foreldra.
    Ég hef miklar áhyggjur einmitt af því að nú virðist kostnaður vera orðinn
    það mikill að það skipti orðið máli hvernig efnahagur foreldranna er,
    efnaminni foreldrar hafa ekki orðið bolmagn lengur til þess að gefa
    börnunum sínum tækifæri á því að taka þátt í mótum og ferðast um og annað
    slíkt. Þetta er verkefni líka og ég hef verið í samtali við
    íþróttahreyfinguna og er öll af vilja gerð til að gera betur hvað þetta
    varðar. Það var nú bara í vor sem ég skrifaði undir tæplega 2 milljarða
    samning við ÍSÍ þar sem við erum að veita fjármuni og leggja sérstaka
    áherslu á að styðja við fararsjóði og aðra sjóði fyrir börn úti á landi
    sem eiga erfiðara uppdráttar. <ns:bjalla/> En við verðum að gera svo
    mörgum sinnum miklu betur því það verða alltaf einhverjir út undan og það
    er ekki það sem við viljum sjá.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>