<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T20:44:46" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:46:16 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:44:46">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir hennar ræðu. Mig
    langar að grípa boltann líkt og fyrri ræðumaður varðandi tíu ára stúlkuna
    og snúa dæminu við. Mig langar að snúa dæminu við og skoða hvernig það
    horfir við fjölskyldu þessarar stúlku þegar þau horfa fram á 5,2%
    krónutöluhækkun frá ríkinu, þegar þau sjá fram á að barnabætur standi í
    stað og rýrni að raunvirði, þegar þrepamörk tekjuskatts eru fryst, þegar
    vaxtabætur hjá heimilinu falla niður, þegar komugjöld heilsugæslunnar
    hækka um 100%, og til sjúkraþjálfara líka, þegar lyfjakostnaður hækkar um
    500 milljónir á landsmenn, þegar kílómetragjaldið hjá þessari fjölskyldu
    hækkar reikninginn um 16%, þegar farsæld barna — því okkur verður tíðrætt
    um mikilvægi þess að fara í snemmtæka íhlutun — þegar er verið að skera
    niður málaflokkinn um farsæld barna um 1,1 milljarð, þegar er verið að
    skera niður ferðasjóð ÍSÍ um 100 millj. kr., sem er forsenda þess að börn
    geti tekið þátt í íþróttum, að þau á landsbyggðinni geti komið og tekið
    þátt í íþróttamótum sem eru að mestu leyti haldin hér í
    Reykjavík.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvað henni finnst varðandi
    þessar afleiðingar á heimili fjölskyldna í landinu.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>