<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-10T20:46:24" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:48:30 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:46:24">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir fyrirspurnina. Já, það
    er alltaf sárt, það verður bara að segjast eins og er, þegar þarf að hækka
    og leggja frekari álögur á fólkið í landinu. Það liggur alveg fyrir og það
    hefur ekki verið mín mantra. En það breytir ekki þeirri staðreynd að þetta
    hefur verið gert áratugum saman, líka í ríkisstjórn Framsóknarflokks og
    Sjálfstæðisflokks þar sem í rauninni á hverju einasta ári hefur þessi
    fasta krónutala fylgt. En það er svolítið athyglisvert að vera að tala um
    öll fjárlögin í heild sinni þegar ég ætlaði nú af mikilli gleði að tala um
    menntamál. Mér finnst þau skipta miklu máli og það sem heyrir undir mitt
    ráðuneyti.</ns:mgr>

    <!--Hlusta 20:46:50 …þessi fasta krónutala fylgt? Segir hún „fylgt“?-->

    <ns:mgr>Fyrst hv. þingmaður nefnir kílómetragjald þá skulum við bara tala
    um þessa 1 kr. og 10 aura sem er hrópað um að séu tæp 16% sem þýða heilar
    tæpa 16.000 kr. á ári fyrir þann sem keyrir 15.000 km. Ég segi fyrir mína
    parta að meðalfjölskyldan mun sennilega vera þakklátari fyrir þetta en að
    olíugjaldið hefði haldið áfram og bensínlítrinn væri nú 94 kr. hærri en
    hann raunverulega er. En það er í ýmis horn að líta og ég ætla ekki að
    fara að argaþrasast um það hvort heldur þetta sé svona eða hinsegin. Allar
    álögur á borgarana eru erfiðar og sérstaklega fyrir þá sem höllustum fæti
    standa í samfélaginu. Það liggur algerlega fyrir, það liggur fyrir að
    bognu bökin má illilega beygja meira eins og ég hef ítrekað tekið fram í
    þessum ræðustól. En það breytir heldur ekki þeirri staðreynd, þegar við
    tölum um barnabætur að þar er einkennilegt að einhverjir hafa farið í
    gegnum glufur í því kerfi, þar er fjölskylda með yfir 40 milljónir í
    árstekjur sem er með barnabætur. Það eru að fara á þriðja milljarð króna í
    barnabætur til hátekjufólks vegna glufu sem við fengum frá fyrirrennurum
    okkar í ríkisstjórn. Í þessar glufur ætlum við að reyna að sparsla og færa
    þessa fjármuni niður til þeirra sem þurfa meira á þeim að halda. Þannig að
    það eru ýmis verk að vinna og í ýmis horn að líta. Og áfram veginn, hv.
    þingmaður, í næsta andsvari.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>