<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T20:48:39" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:50:10 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:48:39">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. Það hlýtur
    að vera þannig að formaður stjórnarflokks geti svarað fyrir heildarsýn
    ríkisstjórnarinnar þegar kemur að fjárlögum, þannig að það hlýtur að vera
    í lagi að fara aðeins út fyrir málaflokk hæstv. ráðherra.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langaði aðeins að víkja að öðrum málum og tala um biðlista því
    sjaldan eða aldrei hefur biðlisti verið jafn langur eftir greiningum og
    öðru og hæstv. ráðherra kom einmitt inn á það í sínu máli. Mig langar að
    spyrja: Hverjir eru mælikvarðarnir og markmiðin þegar kemur að því að
    fækka á þessum biðlistum sem við viljum öll sjá? Hver eru markmiðin hjá
    ráðuneytinu?</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það var talað um áðan að við gætum ekki beðið eftir að sjá
    árangurinn af símalausum skólum því að Finnar hefðu séð stórkostlegan
    árangur eftir hálft ár. Nú hafa ansi mörg sveitarfélög verið í þó nokkurn
    tíma og lengur en hálft ár með símabann í sínum skólum. Af hverju sáum við
    þá ekki þann árangur skýrt núna í PISA? Og mig langar að spyrja að einu,
    að þegar við horfum á framhaldsskólastigið þá stendur það í stað að
    raunvirði, þótt nemendum fjölgi, og við sjáum að fleiri eru að sækjast í
    starfsbrautir, og framhaldsskólastiginu er gert að hagræða um 1,2
    milljarða. Hvar birtist hin boðaða stórsókn í daglegu skólastarfi í mönnun
    og í stuðningi við nemendur og kennara í fjárlögum ríkisins?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>