<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-10T20:50:18" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:51:47 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:50:18">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Þessi formaður stjórnmálaflokks getur alveg
    sagt það að við erum að tengja launavísitölu við almannatryggingar. Ég get
    alveg sagt það að við erum búnir að stórhækka afkomu fátækasta fólksins í
    landinu og okkur hefur gengið mjög vel hvað það varðar. Það hefur í
    rauninni verið stefna Flokks fólksins frá upphafi. En biðlistar hjá
    Ráðgjafar- og greiningarstöð eru náttúrlega vægast sagt daprir. Það var
    alveg ótrúlegt að við skyldum þurfa að taka við svona löngum biðlistum frá
    Framsóknarflokknum og Sjálfstæðisflokknum. Það var alveg skelfingin ein.
    Alveg merkilegt að þið skylduð ekki vera búin að ná þessu niður. En við
    erum að bæta við núna um 700 millj. kr. í það að reyna að ná þessu niður.
    Flest af því sem við sitjum uppi með, hvort sem það er 840 milljarða
    uppsafnaður halli á síðustu árum eða biðlistar eða hjúkrunarheimilisvá eða
    hvað eina annað sem er, er í rauninni arfur frá fyrri ríkisstjórn sem við
    hefðum gjarnan viljað sleppa við. Það hefði verið afskaplega elskulegt ef
    maður hefði getað byrjað með hreint borð. En svo er bara ekki. </ns:mgr>

    <ns:mgr>Hvað lýtur að fjárveitingum til framhaldsskólanna þá vitum við að
    það hafa verið margar og miklar áskoranir og það hefur fjölgað eins og hv.
    þingmaður bendir á, en því verður mætt öllu eins og hingað til. Það verður
    engum nemanda vísað frá, við munum taka utan um þau öllsömul hér eftir sem
    hingað til og við munum veita það fjármagn sem nauðsynlega þarf til að svo
    verði.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>