<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T20:51:57" skst="BHar" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:54:22 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:51:57">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég ætla að byrja á að þakka hæstv. ráðherra
    fyrir yfirferðina og langar að nefna að ég sagði það við forvera hennar
    hér fyrir ári að ég teldi þetta vera mikilvægasta málaflokkinn. Ég er
    sammála hæstv. ráðherra í því að það á ekki að vera flokkspólitík þegar
    kemur að börnunum okkar og menntun. Vegna þess að hér er stuttur tími þá
    myndi ég óska ég þess að hæstv. ráðherra kæmi hreinlega með skýrslu um
    PISA-niðurstöðuna hér fyrir þingið og gæfi þingmönnum tækifæri til að ræða
    þær niðurstöður svo og þær aðgerðir sem hæstv. ráðherra hefur boðað eða
    hyggst fara í.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Málaflokkarnir eru margir og þeim hefur meira
    að segja fjölgað um einn því hæstv. ráðherra, þegar hún tók nýlega við,
    ákvað að taka líka með sér hjúkrunarheimilin. Ég ætla ekki að fara inn á
    það því það væri líka efni í margar ræður, en mig langar að spyrja hæstv.
    ráðherra aðeins út í það sem frá var horfið hér áðan varðandi
    framhaldsskólana, kafla 20.10 í frumvarpinu. Hér segir á bls. 267, með
    leyfi forseta:</ns:mgr>

    <ns:mgr>„Nær 99% allra ungmenna innritast nú í framhaldsskóla og útlit er
    fyrir að óvenju stórir árgangar muni leggja stund á nám árið
    2027.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Eins og hæstv. ráðherra sagði hyggst hún sjá til þess að allir fái
    skólavist. En það segir líka, með leyfi forseta:</ns:mgr>

    <!--https://www.althingi.is/altext/pdf/158/s/0001.pdf-->

    <ns:mgr>„Við vinnslu frumvarps til fjárlaga 2027 var stuðst við sömu
    nemendatölur og voru í fjárlögum 2026 …“ — en samt vitum við að þetta er
    stór árgangur — „Fyrir 2. umræðu fjárlaga 2027 verða gerðar breytingar á
    nemendafjöldatölum og fjárveitingum til skóla en þá liggja fyrir betri
    upplýsingar um skólavist nemenda í fullu námi á haustönn 2026.“</ns:mgr>

    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Mig langar að spyrja hæstv. ráðherra hvort hún
    hafi ekki þegar innsýn í þessar tölur því framhaldsskólarnir eru byrjaðir
    og það er búið að samþykkja skólavist þessara nemenda þannig að við áttum
    okkur á því um hvaða fjárhæðir ræðir því að á sama tíma hefur hæstv.
    fjármálaráðherra svolítið gefið fjárlagavaldinu, Alþingi, rauða spjaldið,
    ef við notum það orðalag, og sagt að hér megi engu breyta. Ljóst er að það
    vantar aukið fjármagn inn í þennan málaflokk og ég spyr hæstv. ráðherra:
    Hvað sér hún fyrir sér að þetta séu miklir fjármunir og hvernig mun hún
    sjá til þess að hægt sé að veita þá fjármuni til
    framhaldsskólanna?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>