<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-10T20:54:28" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:56:41 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:54:28">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Bryndísi Haraldsdóttur fyrir sínar
    góðu fyrirspurnir. Tölur liggja ekki fyrir fyrr en í þriðju viku skólaárs
    þannig að við höfum ekki enn nákvæma yfirsýn yfir þær tölur. Svoleiðis
    hefur það alltaf verið, ef ég skil það rétt. Það er rétt, eins og hv.
    þingmaður nefnir, að það var óvenjustór árgangur sem var að innritast
    núna. Það eru líka meiri áskoranir hvað lýtur að verknáminu fyrir börn með
    mismunandi stuðningsþarfir. Fjöldi þeirra hefur tvöfaldast, og það eru
    eiginlega þyngstu og dýrustu úrræðin okkar, á tiltölulega skömmum tíma.
    Hins vegar eru þær blikur á lofti og vitað að árgangar sem á eftir koma
    munu verða þó nokkuð fámennari, svo framarlega sem við fáum ekki mikið af
    fólki einhvers staðar annars staðar frá sem við þurfum að taka utan um. En
    það eru engar blikur á lofti í þá átt þannig að ég tel að það sem við erum
    að leggja af stað með, 1,2% aðhald í sambandi við hagræðingu í rekstri og
    annað slíkt, eigi að duga. Við erum í samtali við skólameistara
    framhaldsskólanna, það var samtal við þá í gær, ef ég man rétt. Það eru
    allir tilbúnir til að hagræða og reyna að bæta og breyta og laga ef nokkur
    kostur er.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En ég stend við það að það er engu barni úthýst og þau munu öll fá
    skólavist og þau munu öll fá þá þjónustu sem þarfir þeirra krefjast. Ég sé
    því bara bjart fram undan og ég þakka hv. þingmanni fyrir að vera mér
    sammála um það að við eigum að taka höndum saman. Við munum gera það sem
    gera þarf til að börnin okkar haldi ekki áfram að vera ákveðin fórnarlömb
    aðstæðna sem þau óskuðu ekki eftir sjálf, eins og t.d. það að fá ekki
    betri útkomu úr námi sínu í 10. bekk, eftir tíu ára grunnskólagöngu, en
    raun ber vitni. Það er stór og mikill áfellisdómur. Við þurfum að snúa því
    við og ég hef fulla trú á því að við getum gert það saman.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>