<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T20:56:49" skst="BHar" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 20:58:32 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T20:56:49">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið. En
    bíddu, skildi ég það rétt að ekki væri gert ráð fyrir auknum fjárveitingum
    til framhaldsskólanna milli umræðna, þrátt fyrir að ljóst væri að þessir
    stóru árgangar væru að koma inn og tölurnar lægju ekki fullkomlega fyrir?
    Ég skildi textann í greinargerðinni með þeim hætti að það myndi þurfa að
    bæta framhaldsskólanum það upp. Virðulegur forseti. Ég held að það sé
    mikilvægt að fjárlaganefnd fái alla vega botn í þetta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>En mig langaði líka að spyrja um vinnustaðanámið. Ég sé hér að það
    eru aftur komnir fjármunir í uppbyggingu verknámsskólanna og ég heyrði
    hæstv. ráðherra fara yfir það. Það er gott, það er mikilvægt. Reyndar held
    ég að hæstv. ráðherra viti það jafn vel og ég að þeir fjármunir sem
    ætlaðir eru í það verkefni munu væntanlega ekki duga fyrir öllum þeim
    verkefnum sem liggja fyrir. En hér segir í kafla 20.30, um vinnustaðanám
    og styrki, að heildarfjárframlög til þess málaflokks séu þau sömu og á
    síðasta ári og meira að segja í fylgiritinu með fjárlögum á svo að lækka
    þá upphæð um 150 millj. kr. á næsta ári. Nú er þetta sjóðurinn sem
    aðstoðar krakkana við að klára námið sitt, komast út á vinnumarkaðinn og
    fá starfsreynslu. Þetta eru styrkir til þeirra fyrirtækja eða þeirra
    iðnmeistara sem taka að sér nema. Er það raunverulega svo að hæstv.
    ráðherra sjái fyrir sér að hægt sé að lækka þann sjóð á sama tíma og það
    eru fyrirheit um að gefa í í iðn- og starfsnámi og á sama tíma og við
    viljum fjölga iðnmenntuðu fólki á Íslandi?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>