<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T21:00:34" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:02:59 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:00:34">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Mig langar að spyrja hæstv. svona heilt yfir
    hver hennar framtíðarsýn sé á helstu áskoranir í þessum málaflokki sem
    undir hana heyrir, þá á ég við menntamálin frekar en borðaklippingarnar
    hjá hjúkrunarheimilunum, þ.e. um menntamálin almennt, grunnskólann og
    framhaldsskólana. Er eitthvað sérstakt sem hún gæti nefnt sem væri sérstök
    áskorun í þessu? Frá mínum bæjardyrum séð, hvað þennan málaflokk varðar,
    finnst mér vera ákveðin áskorun að það er auðvitað fjölgun nemenda og mér
    hefur þótt sú þróun sem hefur verið, sú áhersla sem lögð er á að allir
    nemendur fari í framhaldsskóla, vera svolítið vafasöm vegna margvíslegra
    ástæðna.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Ég rak augun líka í það á forsíðu mbl.is, bara núna meðan ég var
    að bíða eftir að komast að í þessari umræðu, að það var viðtal við
    skólastjóra í Rimaskóla, Þórönnu nokkra Ólafsdóttur, sem veltir upp þeirri
    spurningu, og mér finnst það heiðarleg spurning, hvort það þurfi mögulega
    að stoppa af nemendur sem ekki ná viðmiðum. Hún nefnir að það séu börn sem
    klára skólann, hún er að tala um grunnskólana, sem aldrei hafa þurft að
    taka upp pennaveski eða reyna á sig á einn eða annan hátt og það er enginn
    metnaður vegna þess að það er hægt að klára og fara svo í framhaldsskóla.
    Mér fannst ég greina það í svari hæstv. ráðherra áðan að það sé orðið
    eitthvert sérstakt markmið að láta öllum líða vel og útskrifa alla með
    einhverri einkunn þannig að þeir geti komist í framhaldsskóla. Getur það
    hins vegar verið að það sé eðlilegt og það þurfi að styrkja frekar þá
    nemendur sem útskrifast úr grunnskóla án hæfniviðmiða til þess að fara út
    á vinnumarkaðinn strax í stað þess að láta þá þreyja þorrann í nokkur ár í
    framhaldsskóla sem þeir bersýnilega hafa hvorki nokkurn áhuga á né nokkra
    getu til? Getur ekki verið að þetta sé ein af áskorunum t.d.
    menntakerfisins sem verði núna a.m.k. næstu árin?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>