<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-10T21:03:09" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:05:27 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:03:09">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir hennar
    góðu fyrirspurn. Nú erum við með skólaskyldu til 16 ára aldurs og við erum
    með fræðsluskyldu til 18 ára aldurs. Það kannski skýrir að einhverju leyti
    hvers vegna það verður svona mikið brottfall einmitt á því tímabili þegar
    ungmenni eru búin að vera að þreyja þorrann í allt að tvö ár í
    framhaldsskólanum og eru kannski ekki með nógu mikla burði til þess að
    standa undir því. En það er nú bara lögum samkvæmt, það er fræðsluskylda
    til 18 ára aldurs, þannig að því verður náttúrlega ekki breytt hér og nú,
    það liggur fyrir. En ég skil hvað hv. þingmaður er að segja og ég er t.d.
    sú sem vill fara að skoða þetta kerfi sem hefur verið kallað skóli án
    aðgreiningar. Ég vil kalla þetta skóla fyrir alla. Það er ekki hægt að
    réttlæta það að hafa 24–26 börn í bekk sem tala jafnvel átta til tíu
    tungumál og eru með alls konar greiningar og það er ekki í mannlegu valdi
    fyrir nokkurn kennara einu sinni að geta staðið undir slíku álagi. Við
    þurfum í rauninni að fara að gera mjög margt, alveg eins og við þurfum að
    taka utan um börnin okkar þar sem íslenska er annað tungumál. Við þurfum
    að hjálpa kennurum okkar til þess að geta nálgast það að kenna börnunum
    okkar íslensku sem annað tungumál. Verkefnin eru svo mörg, þau eru svo
    ærin. Ég verð bara að viðurkenna það, ég vissi náttúrlega alltaf að það
    væri áskorun að verða mennta- og barnamálaráðherra, en ég hefði nú kannski
    hugsað mig um þrisvar um þrisvar ef ég hefði vitað að hún væri svona
    rosalega stór. Ég vildi óska þess að þeir hefðu verið duglegri og skilað
    þessu betur til mín heldur en raun ber vitni, ég segi bara ekkert annað en
    það.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þess vegna segi ég það að núna gerum við þetta saman. Það er bara
    svoleiðis. Það er verk að vinna og við getum gert þetta saman. En skóli án
    aðgreiningar sem ég tel að sé í rauninni akkilesarhæll í mjög mörgu og
    þessi meðalmennska sem er í rauninni einkennandi inni í skólakerfinu núna
    — við eigum mjög fáa afburðanemendur, það er eins og það eigi að draga
    alla niður í meðaltalið og það fer mikil orka í þá sem eru með greiningar
    og sérþarfir. Þeir eiga að fá þjónustu fyrir sínar sérþarfir og þeir eiga
    að fá hana skilyrðislaust en ekki inni í bekk með þeim sem engar sérþarfir
    hafa.</ns:mgr>

    <!--segir "þeir eiga að fá sínar sérþarfir og þeir eiga að fá hana skilyrðislaust)"- finnst líklegt að hún hafi ætlað að segja "fá sína sérþjónustu" eða e-ð slíkt/st.-->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>