<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T21:05:36" skst="SÁA" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:07:10 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:05:36">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir svarið og get
    tekið undir með henni að það fer kannski hlutfallslega mikil orka í þessi
    útgildi þarna sem ég held að þurfi að huga að hvort ekki sé betra að veita
    í annan farveg. Það var nefnt hérna að menntun væri upphaf alls og undir
    það tók hæstv. ráðherra. En það þarf líka að hafa það í huga væntanlega að
    menntun fer ekki bara fram í skólum. Hún fer einmitt fram líka með
    þátttöku í atvinnulífi og sú þróun er kannski orðin of mikil eða vond sem
    hefur verið að koma í veg fyrir að ungmenni taki þátt í atvinnulífinu á
    þessum aldri. Hæstv. ráðherra segir að því verði ekki breytt hér og nú.
    Nei, ekki kannski í kvöld, en til þess erum við nú í stjórnmálum, til að
    hafa áhrif á stefnu og löggjöf til framtíðar. Þess vegna væri áhugavert að
    vita hvort hæstv. ráðherra hefði áhuga á því að breyta einmitt þessum
    lögum sem gera það að verkum að hér er verið að reyna að troða öllum
    börnum, hverju einasta, inn í framhaldsskóla, jafnvel í bóklegt nám eða í
    verknám fyrir þá sem ekki treysta sér í bóklegt nám og verknámið látið
    einhvern veginn svolítið gjalda fyrir það að vera að taka á móti nemendum
    sem kannski hafa ekki áhuga á því að vera yfirhöfuð nemendur. Spurningin
    er hvort hæstv. ráðherra sjái fyrir sér að það þurfi að gera aðeins meiri
    grundvallarbreytingu <ns:bjalla/> í þessum málaflokki heldur en endalausa
    spretthópa eða menntastefnur til næstu fimm ára.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>