<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T21:08:49" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:10:24 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:08:49">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Í samtali okkar hæstv. ráðherra hér áðan vorum við
    að tala um hallarekstur og hvernig búi núverandi ríkisstjórn tekur við.
    Hún hefur verið mjög gagnrýnin á síðustu ríkisstjórn og mig langar aðeins
    að fara yfir tölur sem koma fram í fjárlagafrumvarpinu varðandi
    uppsafnaðan halla, af því að það er verið að tala um þessa 866 milljarða.
    Ef við horfum á árin 2020, 2021 og 2022 þá útskýrist hallareksturinn að
    mörgu leyti af Covid-aðgerðum og jarðeldum á Reykjanesskaga sem er um 570
    milljarðar. Eftir eru þá rétt rúmir 300. En ef við horfum á árið í ár og
    árið í fyrra þá var um 150 milljarða hallarekstur. Það er í boði núverandi
    ríkisstjórnar. Við skulum bara halda hlutunum hér skýrum. En ég veit ekki
    alveg hvort ég hafi heyrt rétt þegar hæstv. ráðherra var að tala um skóla
    án aðgreiningar eða hvort ég hafi hreinlega misskilið þetta þegar ég var
    að skrifa punkta. Heyrði ég rétt að hæstv. ráðherra segði að börn myndu fá
    alla þá aðstoð sem þau þyrftu, þau sem væru með greiningar, en það yrði
    ekki gert inni í bekknum með nemendum sem þyrftu ekki aðstoð? Er hæstv.
    ráðherra þá að boða að hún ætli að víkja frá stefnu um skóla án
    aðgreiningar og fara að taka börnin úr bekkjunum sem þau eru nú þegar í?
    Það væri ágætt að fá þetta á hreint áður en við höldum áfram.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>