<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-10T21:10:30" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:11:55 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:10:30">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Já, það er rétt, ég hef hugsað mér að innleiða hér
    nýja hugsun sem heitir Menntun fyrir alla. Hvað lýtur að hallarekstri þá
    skal það sagt að hér voru 11 framhaldsskólar reknir með miklum halla í tíð
    fyrri ríkisstjórnar, hallarekstur sem við erum að aðstoða við að reyna að
    rétta úr núna. Ég tek undir með hv. þingmanni, við höfum gengið í gegnum
    ýmislegt, jarðelda, Covid og annað eins og flestar aðrar þjóðir, svo sem í
    sambandi við Covid. Það eru alltaf áskoranir og hugsanlega eigum við sem
    sitjandi ríkisstjórn eftir að fá eitthvað óvænt á fjörurnar, sem ég vona
    nú sannarlega ekki, en enginn veit sína ævina. En það breytir ekki þeirri
    staðreynd að svona er staðan og svona er það líka að vera í
    stjórnarandstöðu, að vera alltaf fúll á móti í stað þess að reyna að gera
    eitthvað sameiginlega og sýna það að við séum hér í sama liðinu þó að við
    séum ekki að deila heilum í sama stjórnmálaflokki. En það er alveg rétt.
    Ég mun taka öðruvísi á skóla án aðgreiningar heldur en nú er. Ég vil
    innleiða nýja hugsun, skóla fyrir alla. Ég var fatlaður nemandi í bekk með
    ófötluðum nemendum. Ég hefði gjarnan viljað hafa misst af því einelti og
    því álagi sem því fylgdi sem lítið barn.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>