<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T21:12:05" skst="IIsak" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:13:23 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:12:05">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Hæstv. ráðherra þekkir það að vera í stjórnarandstöðu en
    það er ekki alls ekki þannig að við í Framsókn séum fúl á móti varðandi
    allt sem er gert. Við gerðum það nú bara hérna síðastliðið vor að við
    buðum fram aðstoð. Við lögðum það til að hér myndu allir flokkar á Alþingi
    taka sig saman þegar kemur að málefnum barna og ungmenna á Íslandi. Hins
    vegar slógu ríkisstjórnarflokkarnir hendinni á móti þeirri útréttu hendi.
    Menntun fyrir alla, gott og vel, það verður gaman að sjá hvernig það mun
    líta út og ég bind vonir við að hæstv. ráðherra sé að ræða þetta við
    forystu kennarasveitarinnar.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Herra forseti. Við stöndum ekki aðeins frammi fyrir auknu álagi í
    skólum heldur líka fyrirsjáanlegum nýliðunarvanda því að stór hópur
    reyndra kennara nálgast starfslok á næstu árum. Það eru ekki nægilega
    margir kennarar að koma inn í þeirra stað. Ég sé í fjárlögum að í markmiði
    3 er lögð áhersla á nýliðun kennara. <ns:bjalla/> Mig langar að spyrja
    hæstv. ráðherra: Hversu margir kennarar munu að mati ráðuneytisins láta af
    störfum á næstu fimm árum? Hversu margir nýir kennarar þurfa að koma inn í
    staðinn? Hvaða fjármagnsáætlun hefur ráðherra til að tryggja þá
    nýliðun?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>