<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="mennta- og barnamrh." frhr="0" id="r2026-09-10T21:13:33" skst="IngS" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:14:52 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:13:33">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Það er
    nú svo sem á snærum hæstv. háskóla-, nýsköpunar- og menningarráðherra að
    tala meira um kennaranámið sem slíkt, nema hvað að við eigum í samtali.
    Við munum breyta því og við munum koma með hvata. Í fyrri ríkisstjórn
    hafði verið kominn hvati til þess að efla áhuga fólks til þess að fara
    t.d. í sjúkraliðanám, fara í hjúkrunarfræðinám og annað slíkt. Okkur
    vantaði fólk í þessar starfsstéttir og það gekk mjög vel. Hugmyndinni var
    hrint í framkvæmd og hún gekk fullkomlega upp. Það var vel gert og við
    viljum bara halda áfram að gera vel. Við höfum fengið stuðning frá
    stjórnarandstöðuþingmönnum hvað lýtur að menntastefnu og menntamálum og ég
    mun ekki hika við að nýta mér <ns:bjalla/> þjónustu þeirra sem vita betur
    en ég hvernig við getum unnið hlutina. Ég hef verið að kalla alla upp á
    dekk og ætla að halda stóra faglega vinnustofu þar sem við munum
    sameiginlega, sama hvar í flokki við stöndum, <ns:bjalla/> vinna að því að
    gera hlutina betri.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>