<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-10T21:15:12" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:20:22 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:15:12">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég mun hér í stuttu máli gera grein fyrir helstu atriðum
    fjárlagafrumvarpsins um málefnasvið sem heyra undir atvinnuvegaráðuneyti.
    Þau eru málefnasvið 12, 13, 14 og að hluta 7, 16 og 21. Samkvæmt
    frumvarpinu liggur fyrir að heildarfjárheimildir til þeirra málefnasviða
    sem undir atvinnuvegaráðuneyti heyra nema um 40,6 milljörðum kr. Þar munar
    mest um 28,1 milljarð til málefnasviðs landbúnaðar. Síðan eru þar 7,9
    milljarðar til sjávarútvegs og fiskeldis, 2,7 milljarðar til málefnasviðs
    ferðaþjónustu og 1,2 milljarðar til markaðseftirlits og
    neytendamála.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þegar horft er til breytinga á fjárheimildum frá gildandi
    fjárlögum lækka útgjöld til málefnasviða ráðuneytisins um 197 millj. kr. á
    föstu verðlagi fjárlaga 2026 en að teknu tilliti til áhrifa af almennum
    launa- og verðlagsbreytingum hækka útgjöld málefnasviða ráðuneytisins um
    1,2 milljarða kr. Þegar horft er til einstakra útgjalda, að frátöldum
    launa- og verðlagsbreytingum, munar þar mest um 533 millj. kr.
    aðhaldskröfu á málefnasviði ráðuneytisins. Útfærsla aðhaldskröfunnar felur
    bæði í sér sértækar og almennar ráðstafanir.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í ráðuneyti mínu höfum við einsett okkur að einfalda flókin kerfi,
    bæta þjónustu og tryggja að fjármunir hins opinbera stuðli að sterkara
    atvinnulífi. Eitt af lykilverkefnum á þeirri vegferð er Stofnun
    atvinnuveganna sem mun hefja starfsemi 1. janúar 2027. Stofnunin er sett á
    fót með sameiningu Matvælastofnunar, Fiskistofu og Verðlagsstofu
    skiptaverðs og er henni ætlað að sinna verkefnum á sviði sjávarútvegsmála,
    lagareldis, lax- og silungaveiði, fiskræktar, matvæla, dýravelferðar og
    heilbrigði dýra og plantna. Hlutverk og verkefni nýrrar stofnunar verða að
    mestu leyti hin sömu og forvera hennar með þeirri undantekningu að
    matvælaeftirlit verður jafnframt fært til hinnar nýju stofnunar frá
    heilbrigðisnefndum sveitarfélaga. Með Stofnun atvinnuveganna verður til ný
    og öflug eftirlitsstofnun þar sem horft verður til þess að einfalda
    stjórnsýslu, tryggja öflugar starfsstöðvar um land allt ásamt því að auka
    skilvirkni fyrir eftirlitsþega, eftirlitsaðila og almenning. Í
    fjárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að fjárveiting til Stofnunar
    atvinnuveganna verði rúmir 4,5 milljarðar kr.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Í ráðuneytinu er unnið að annarri stórri sameiningu af álíka
    miklum metnaði á stofnunum og verkefnum á sviði viðskipta, samkeppnis- og
    neytendamála með það að markmiði að mæta áherslum úr stefnuyfirlýsingu
    ríkisstjórnarinnar um að tryggja sterkt samkeppniseftirlit, öfluga
    neytendavernd, hagstæð rekstrarskilyrði fyrirtækja og skilvirkni í
    samskiptum fyrirtækja og hins opinbera.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Áherslur mínar í atvinnuvegaráðuneytinu eru sem fyrr að skapa
    skilyrði fyrir verðmætasköpun og einfalda rekstrarumhverfi fyrirtækja. Á
    málefnasviði ferðamála er gert ráð fyrir 330 millj. kr. framlagi til að
    halda áfram með neytendamarkaðssetningu á Íslandi sem áfangastað en á
    þessu ári fara um 630 millj. kr. í verkefnið. Þetta er markaðssetning sem
    lengi hefur verið kallað eftir án þess að við því hafi verið brugðist. Því
    er nú verið að breyta. Ásamt þessu er lögð áhersla á að einfalda regluverk
    og stjórnsýslu í ferðaþjónustu, tryggja viðvarandi markaðssetningu á
    Íslandi sem áfangastað ferðamanna og stuðla að aukinni dreifingu
    ferðamanna um landið. Frumvarp um náttúru- og innviðagjald, sem kynnt
    verður í samráðsgátt á næstu dögum, er liður í þeirri vegferð.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Forseti. Á málefnasviði sjávarútvegs og fiskeldis er lögð áhersla
    á að bæta skilyrði til aukinnar verðmætasköpunar með sjálfbæra nýtingu og
    vistkerfisnálgun að leiðarljósi. Í því skyni hafa á síðustu árum verið
    tryggðir fjármunir á fjárlögum til eflingar hafrannsókna og
    fiskveiðieftirlits. Þá hafa jafnframt verið tryggðir fjármunir á liðnum
    árum til að styrkja verkefni á sviði burðarþolsmats fjarðakerfa ásamt því
    að bæta eftirlit með sjókvíaeldi.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Á málefnasviði landbúnaðar er markmiðið m.a. að efla fæðuöryggi og
    skapa skilyrði til fjölbreyttari landbúnaðarframleiðslu með sjálfbærni og
    verðmætasköpun að leiðarljósi. Þar ber að nefna áframhaldandi eflingu
    kornræktar sem stefnt er að með aukinni innlendri framleiðslu á korni til
    fóðurs og manneldis. Áfram verður unnið að innleiðingu verndandi arfgerða
    gegn riðuveiki og gert ráð fyrir að útboð á söfnunarkerfi dýraleifa verði
    klárað fyrir árslok 2026.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mestu útgjöld í mínu ráðuneyti tengjast búvörusamningum. Samið
    hefur verið um framlengingu þeirra óbreyttra út árið 2027 en stefnt er að
    því að heildarendurskoðun á stuðningskerfi landbúnaðar liggi fyrir á
    komandi árum. Þá er gert ráð fyrir í fjárlagafrumvarpinu að framlög til
    búvörusamninga verði um 20,2 milljarðar kr. á næsta ári sem eru um
    helmingur af heildarútgjöldum málefnasviða ráðuneytisins. — Ég er búin að
    fara á hundavaði yfir helstu atriði og hlakka til samtalsins.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>