<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-10T21:22:56" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:25:21 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:22:56">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Árna Helgasyni fyrir prýðisgóðar
    spurningar. Þetta er auðvitað lykilatriði þegar kemur að uppbyggingu og
    verðmætasköpun í okkar helstu atvinnugreinum, að þar ráði skynsemin för.
    Ég heyri þessar tölur og þessar forsendur sem hv. þingmaður gefur sér og
    mig langar að byrja á því að tala um virðisaukaskattshækkanirnar á
    ferðaþjónustu þar sem verið er að færa þennan litla hluta sem dvalarrýmin
    eru í almenna virðisaukaskattsþrepið sem önnur atvinnustarfsemi á Íslandi
    ber. Ég hygg að það sé nokkuð sem flest baðlón geti staðið undir, ef marka
    má áhuga ferðamanna sem hingað koma á að sækja þessa staði. Við vitum að
    þetta gengur vel. Ég hef vissulega ákveðnar áhyggjur af því, ekki bara
    þegar kemur að þessum virðisaukaskatti á baðlónin, heldur almennt þessari
    dreifingu ferðamanna um landið. Við erum með ákveðin svæði sem búa við
    mikinn fjölda ferðamanna svo það jaðrar við ágang og síðan önnur mun
    kaldari svæði. Markmiðið er auðvitað að byggja upp innviði þannig að
    svæðin geti tekið á móti þeim fjölda ferðamanna sem þar er, og jafnframt
    að reyna eins og kostur er að dreifa ferðamönnum þó svo að þeir séu
    sjálfstæð eining. Það er virðisaukaskattsmálið. Þegar kemur að
    innviðagjaldinu þá er þetta býsna svört mynd sem þingmaður dregur upp
    vegna þess að frumvarpið sem ég er með í smíðum miðar fyrst og fremst að
    því að aðstoða við að dreifa ferðamönnum þannig að við erum með þá staði í
    huga sem mest ásókn er í og að þau gjöld fari að stórum hluta í rannsóknir
    og markaðssetningu, allt með það sameiginlega markmið okkar að reyna eins
    og kostur er að efla ferðaþjónustu sem heilsársferðaþjónustu og ná frekar
    að laða ferðamenn að þessum svokölluðu köldu svæðum. Þetta er auðvitað
    markmiðið. Ég get ekki almennilega farið í frumvarpið núna. <ns:bjalla/>
    Ég er ekki með það alveg tilbúið í samráðsgátt og það verður sennilega
    ekki fyrr en eftir helgi úr þessu. Þá getum við vonandi tekið aftur
    samtalið um þau mál. Ég næ ekki að ræða þetta með kílómetragjaldið.
    Auðvitað er það nokkuð sem ferðamenn, <ns:bjalla/> líkt og aðrir sem keyra
    bíla, greiða en á móti kemur auðvitað bensíngjaldið.</ns:mgr>

    <!--Hlusta 21:24:08 Mér heyrist hún segja: …þar sem það er undir //glg -->
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>