<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T21:25:29" skst="ÁrnH" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:26:34 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:25:29">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Hæstv. forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sitt svar. Það er
    fróðlegt að heyra að það sé á leiðinni þetta frumvarp um innviðagjald eða
    ferðamannapassa. Þetta hefur verið kallað ýmsum nöfnum og þetta er svo sem
    ekki í fyrsta skipti sem við spreytum okkur á því. Reynslan hefur verið sú
    að þetta er þrátt fyrir allt dálítið flókið í framkvæmd. Það eru grá svæði
    í þessu. Það er erfitt að afmarka hverjir eiga að borga og hvar gjaldtakan
    á að fara fram. Er gjaldið tekið á flugmiða, er það á áfangastöðum eða við
    komuna til landsins? Tekur það til Íslendinga eða útlendinga? Hvað með
    Íslendinga sem búa erlendis? Svona mætti lengi telja, það eru mörg grá
    svæði. Ég heyri á hæstv. ráðherra að málið er í vinnslu og ég virði það og
    tek fram að auðvitað er markmiðið gott, að reyna að dreifa álagi. En mig
    langaði þó að kanna hvort hæstv. ráðherra myndi vilja dýpka umræðuna og
    upplýsa okkur um stóru myndina, um hverju við mættum eiga von á í útfærslu
    o.s.frv. þegar að þessu kemur.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>