<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-10T21:26:45" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:28:13 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:26:45">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Það er alveg rétt, þetta hefur verið reynt áður og ég hef
    eiginlega ekki hitt nokkra manneskju sem ekki sér eftir því að það ágæta
    mál sem ráðherra Sjálfstæðisflokksins vann að fyrir sennilega tíu árum
    hafi ekki náð fram að ganga. Staðan væri töluvert önnur í dag ef svo hefði
    verið. Síðan hafa hlutirnir breyst og hv. þingmaður spyr hvort ég geti
    gefið eitthvað upp. Ég get gert það og nefnt t.d. að í stefnuyfirlýsingu
    ríkisstjórnarinnar segir að á meðan unnið er að útfærslu þessa máls skuli
    tekin upp komugjöld. Það var ekki gert vegna þess að það var ekki
    skynsamlegt í ljósi stöðunnar að vera að bæta enn á. Við vitum öll að
    undanfarin ár, óháð því hvaða flokkar hafa setið í ríkisstjórn, hefur
    byggst upp mjög brotakennd mynd af gjaldtöku í ferðaþjónustu og það er það
    sem við erum að hluta til að reyna að vinda ofan af. Ég get tekið
    bílastæðagjöldin sem dæmi. Í því máli sem nú er í lokaundirbúningi fyrir
    samráðsgátt <ns:bjalla/> er t.d. verið að taka mið af því að það verði
    ekki bæði tekið bílastæðagjald og þetta innviðagjald. Það verður litið
    þannig á það. Það hefur komið fram í umræðunni að við erum að líta til
    þess að það séu einstaklingar með skattalega heimilisfesti á Íslandi sem
    greiða ekki gjaldið o.s.frv. <ns:bjalla/> Það er því verið að líta til
    ýmissa þátta og ég bind vonir við það að menn sjái kostina við þetta mál
    og tækifærin í því.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>