<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-10T21:30:26" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:32:53 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:30:26">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Eydísi Ásbjörnsdóttur fyrir góðar
    spurningar sem koma í mjög góðu framhaldi af fyrra samtali við hv.
    þingmann. Við búum einmitt yfir svo miklum tækifærum og það er svo
    mikilvægt að reyna að ná utan um þetta heildstætt. Við höfum, eins og ég
    kom inn á í ræðunni, sett 630 millj. kr. í neytendamarkaðssetningu í ár og
    í fjárlagafrumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir 330 millj. kr. Í framhaldi
    er síðan með náttúru- og innviðagjaldi búist við að skapist líka svigrúm
    til að halda þeirri markaðssetningu áfram vegna þess að
    ferðaþjónustuaðilar hafa gagnrýnt hvað okkur er tamt að taka þessi mál með
    áhlaupi, þ.e. fara í átak og svo að missa boltann og fara í átak og missa
    boltann meðan samkeppnislönd okkar eru miklu jafnari í sinni vinnu. Þetta
    á sannarlega ekki bara við um ferðaþjónustuna. Þetta virðist einhvern
    veginn vera okkur í blóð borið. Þetta erum við að reyna að jafna út, þ.e.
    vera með stöðuga markaðssetningu, m.a. til að reyna að jafna út þessar
    árstíðasveiflur. Það verður að segjast eins og er að þeir staðir á Íslandi
    sem finna mest fyrir því þegar fjöldi ferðamanna fellur niður eru staðir
    sem eru fjærst þéttbýlissvæðunum. Það er markmiðið. Það er lykilmarkmið
    okkar. Það er auðvitað ekki gert þannig að við segjum ferðamanninum hvert
    hann á að fara en við getum búið til aðlaðandi staði. Við getum hvatt
    ferðamenn til þess með markaðssetningu og markvissri uppbyggingu innviða,
    t.d. með því að nýta tæki eins og Framkvæmdasjóð ferðamannastaða.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Á síðasta ári setti ég öryggið á oddinn við umsóknir og úrvinnslu
    umsókna en ég hef gefið það út að núna verði áherslan á dreifingu
    ferðamanna á þessi köldu svæði þannig að einhvern veginn verður reynt að
    meta þetta þannig að í úthlutuninni, sem eru einhverjar 800 millj. kr. sem
    við höfum, verði fókuserað á þessa minna sóttu staði, vegna þess að það
    hjálpar öllum. Það er gríðarlega mikilvægt fyrir þessa staði, fyrir
    uppbyggingu á þessum stöðum og líka til að <ns:bjalla/> minnka álagið á þá
    staði sem búa núna við gríðarlega mikið álag.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Þetta er, ef ég leyfi mér að sletta sem ég veit að mér er bannað
    að gera en ætla samt að gera það, „win-win“ fyrir okkur öll að ná þessu
    markmiði og ég tel að við þurfum að sameinast um það. Ég er líka með í
    smíðum frumvarp sem lögfestir flugþróunarsjóð, svo dæmi sé tekið.
    <ns:bjalla/> Um þann sjóð eru ekki til lög. Þetta er allt liður í þeirri
    vegferð.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>