<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T21:33:02" skst="EÁs" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:34:02 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:33:02">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. atvinnuvegaráðherra fyrir
    svarið. Varðandi dreifingu ferðamanna vil ég einmitt nefna og tel líka
    mikilvægt að horfa til flugþróunarsjóðs og hvernig hann getur stutt við
    beina tengingu landsbyggðarinnar við erlenda markaði. Betra aðgengi getur
    skapað ný tækifæri fyrir fyrirtæki og samfélög utan höfuðborgarsvæðisins
    og stuðlað að betri dreifingu ferðamanna. Við eigum frábæra flugvelli,
    bæði á Akureyri og Egilsstöðum, sem gætu nýst betur sem gáttir inn í
    landið. Ég trúi því svo sannarlega að þarna sé enn óplægður akur í
    íslenskri ferðaþjónustu enda hafa Norðurland og Austurland upp á ótal
    margt að bjóða fyrir ferðamenn. Hvernig sér hæstv. atvinnuvegaráðherra
    fyrir sér að nýta flugþróunarsjóð á næstu árum?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>