<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-10T21:34:08" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:35:30 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:34:08">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Aftur þakka ég fyrir fyrirspurnina. Mig langar kannski að
    segja áður en lengra er haldið að meðal þess sem við erum að gera og lýtur
    að þessari áherslu á dreifðari staði þegar kemur að markaðssetningunni er
    að við höfum verið að efla og styrkja markaðsstofur um allt land með
    ákveðnum fjármunum. Það eru náttúrlega lykilaðilar fyrir okkur, að þeir
    taki þátt í þessari vinnu. Eins og ég sagði er ég að lögfesta
    flugþróunarsjóð og festa hann í sessi. Hann skiptir auðvitað miklu máli.
    Við höfum líka notað framkvæmdasjóðinn til að styrkja þessa staði, þessa
    segla hringinn í kringum landið. Ég hef fundað með erlendum flugfélögum
    sem hafa verið að fljúga hingað og þá til Akureyrar og hafa verið að skoða
    Egilsstaði. En þeirra eðlilegu sjónarmið eru líka að innviðirnir þurfi að
    fylgja. Þetta er því alltaf spurning um hvað við gerum. Byggjum við upp
    innviði til að laða að ferðamenn eða koma fjárfestingar í
    innviðauppbyggingu þegar ferðamenn eru farnir að koma? Þarna tel ég ríkið
    leika stórt hlutverk <ns:bjalla/> til að liðka fyrir og vera með
    trúverðuga stefnu og framkvæmd sem laðar að fjárfesta á sama tíma og
    ferðamenn fara að líta á þessa staði hýrara auga. Þetta er lykilverkefnið
    fram undan.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>