<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T21:35:36" skst="BergÓ" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:37:37 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:35:36">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Herra forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir að koma til þessarar
    umræðu. Mig langar að spyrja um tvennt. Í fyrsta lagi sagði hæstv.
    ráðherra í svari við spurningu hv. þm. Árna Helgasonar, í tengslum við
    hækkun virðisaukaskatts á baðlón, að flest baðlón gætu staðið undir þessu.
    Skil ég hæstv. ráðherra rétt, þ.e. að ráðherra sjái fyrir sér að baðlónin
    taki þetta á sig? Eða telur hæstv. ráðherra að raunin verði sú að verð
    hækki sem þessu nemur og það hafi áhrif á eftirspurn og annað og fýsileika
    þessara frábæru staða sem við eigum sem betur fer mjög marga og flesta úti
    á landi? Ekkert þessara baðlóna er í Reykjavík, held ég að mér sé óhætt að
    segja. Það er eitt í Kraganum en önnur held ég að séu í
    landsbyggðarkjördæmunum þannig að landsbyggðarskatturinn verður nú varla
    meiri en þetta. En það er bara þetta sjónarmið sem mig langar að heyra
    hæstv. ráðherra dýpka aðeins, hvort ráðherrann sjái fyrir sér að baðlónin
    taki þessa hækkun á sig og þá vísa ég í þau orð að flest baðlónin geti
    staðið undir þessu.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Hitt atriðið sem mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra út í er
    afstaða ráðherra til þeirrar breytingar er varðar endurgreiðslu
    virðisaukaskatts á nýbyggingum, þar sem verið er að lækka
    endurgreiðsluhlutfallið umtalsvert. Byggingargeirinn er í umtalsverðum
    vandræðum nú um stundir og mig langar að biðja hæstv. ráðherra um að fara
    yfir hver afstaða ráðherra er til þessa í ljósi þeirrar stöðu og þeirra
    augljósu áhrifa sem þessi breyting mun hafa á byggingarkostnað.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>