<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-10T21:37:46" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:40:07 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:37:46">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þm. Bergþóri Ólasyni fyrir fyrirspurnina.
    Fyrst varðandi það sem lýtur að baðlónum þá lá það að baki hjá mér, eins
    og kannski mátti vera augljóst af samhengi hlutanna, að við vorum að ræða
    um hin kaldari svæði. Þeir staðir sem ekki tilheyra þessum kaldari svæðum,
    og þá er ég að horfa til baðlónanna á Norðaustur- og Austurlandi, eru það
    fjölsóttir að þar er bara stöndugri rekstur vegna þess að þar eru fleiri
    ferðamenn. Hvað einstaka baðlón síðan gera við það að fara að greiða
    virðisaukaskatt á pari við það sem gerist í samkeppnislöndum okkar ætla ég
    að leyfa hverjum og einum rekstraraðila að stýra án þess að hafa endilega
    skoðun á því. En varðandi endurgreiðslur á byggingarframkvæmdum, af því að
    þetta heyrir ekki undir málefnasvið atvinnuvegaráðuneytisins, þá ímynda ég
    mér að þar sé hæstv. ráðherra að tala um hótel og uppbyggingu í
    ferðaþjónustu almennt, bara almennt um iðnaðinn. Þetta er auðvitað
    endurgreiðsla sem hefur farið stiglækkandi undanfarin ár. Ég þekki það
    ekki í hnotskurn en ég veit að það hefur verið legið yfir þessum tölum og
    þær skoðaðar en við höfum oft frekar verið að horfa á fjármagnskostnað
    almennt sem helstu hindrunina fyrir því að hér sé fjárfest í
    byggingum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Það frumvarp sem fjármálaráðherra mælir fyrir hér er einmitt sett
    fram með sínum markmiðum um hallalaus fjárlög til þess að ná böndum á
    verðbólgu og vexti sem ég hygg að hafi töluvert að segja um svigrúm
    iðnaðarins til að halda áfram fjárfestingum, en þetta brot, þessi 30%
    niðurfelling á endurgreiðslu af vaski, er ekki hið stóra markmið. Eins og
    hér hefur margkomið fram í máli þeirra ráðherra sem rætt hafa frumvarpið
    hér í dag <ns:bjalla/> eru þetta um margt frekar sársaukafullar aðgerðir
    sem þarf að fara í. En markmiðið er skýrt. Náist það eins og stefnt er að,
    og við erum sannfærð um að það náist með þessu frumvarpi, verður
    ávinningurinn á þann veg að það verða ekki síst iðnaðurinn og
    byggingaframkvæmdir sem munu njóta góðs af því.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>