<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-10T21:41:27" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:42:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:41:27">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka fyrirspurnina. Eins og hv. þingmaður kemur inn á
    þá er þetta gjald sem sett er á notkun á þessari ferðaþjónustu en ekki í
    þeim skilningi gjald sem sett er á fyrirtæki. Og aftur þá er fyrirtækjunum
    í sjálfsvald sett hvernig þau bregðast við þegar kemur að
    virðisaukaskattinum. En það er auðvitað óumdeilt að fyrirhugað náttúru- og
    innviðagjald, eða þetta auðlindagjald sem ég er að koma með, er gjald á
    ferðamenn sem heimsækja umræddar náttúruauðlindir okkar og þetta er nokkuð
    sem er alþekkt víða um heim. Eins og ég kom inn á í fyrra svari mínu er
    þetta nokkuð sem mun ef eitthvað taka til í þeim gjaldafrumskógi sem hér
    hefur byggst upp á undanförnum árum og ferðaþjónustan hefur eiginlega
    þurft að svamla um í, ef svo má segja. Það liggja líka fyrir
    skoðanakannanir sem framkvæmdar eru hjá erlendum ferðamönnum sem sýna að
    þeir skilja og eru frekar meðmæltir <ns:bjalla/> því að slíkt gjald sé
    tekið svo fremi sem það fari í uppbyggingu á sömu stöðum. Ferðamenn finna
    fyrir auknu áreiti á þessa innviði okkar sem þessi fjölgun hefur í för með
    sér. Það er því ekki alltaf endilega jákvæð upplifun <ns:bjalla/> sem þeir
    fá af þessu. Ég er sannfærð um að þetta muni skila góðum árangri og verða
    til þess að efla verðmætasköpun í atvinnugreininni.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>