<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða frhr="0" id="r2026-09-10T21:43:07" skst="BÞT" tegflm="Þ" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:45:20 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:43:07">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Virðulegur forseti. Hæstv. ráðherra. Sá sem hér talar er alinn upp
    vestur á fjörðum og gegndi um árabil stöðu sveitarstjóra í fámennu og
    kvótalausu sveitarfélagi. Súðavíkurhreppur er eitt af
    eldissveitarfélögunum og er skilgreint sem áhrifasvæði fiskeldis. Þar
    hefur íslenska fyrirtækið Háafell byggt upp starfsemi sína af fyrirhyggju
    og varfærinni nálgun á umhverfið. Áhrif þess á sveitarfélagið hafa verið
    jákvæð og samvinna við félagið með ágætum. Áhrifa laxeldis gætir hvað mest
    á Vestfjörðum og jafnvel hefur verið talað um vestfirskt efnahagsundur.
    Viðsnúningurinn hefur verið mikill í sveitarfélögum þar sem sjókvíaeldi
    hefur haslað sér völl, bæði hvað varðar atvinnulíf og búsetu. En gangur
    sjókvíaeldis var ekki alltaf sá sem hann er í dag. Frumkvöðlar ruddu
    brautina og þurftu að sýna bæði þrjósku og staðfestu. Það sama má segja um
    Kerecis, sprotafyrirtæki sem sprottið hefur upp úr sjávartengdum greinum
    og hefur náð einstakri velgengni.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Nú horfum við til nýrra tækifæra, m.a. í ræktun stórþörunga og
    sjávargróðurs. Þar geta legið mikil tækifæri til atvinnuuppbyggingar víða
    um land enda státar landið okkar af gríðarlegri strandlengju. Möguleikar í
    greininni geta því verið miklir. Ég vil hrósa hæstv. atvinnuvegaráðherra
    fyrir að leggja áherslu á að marka stórþörungaræktun strax skýran
    lagaramma. Í nýjum atvinnugreinum er mikilvægt að leikreglurnar séu skýrar
    frá upphafi. Sama hugsun birtist í þeirri vinnu sem ráðherra hefur boðað
    við nýja löggjöf um hafeldi. Reynslan sýnir okkur mikilvægi þess að
    atvinnugreinar búi við skýran farveg, öflugt eftirlit og fyrirsjáanleika.
    Reynslan af sjókvíaeldi sýnir okkur hversu mikilvægt er að sætta ólík
    sjónarmið og skapa atvinnugreinum skýran farveg með öflugu eftirliti og
    skýrum leikreglum.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Mig langar því að spyrja hæstv. atvinnuvegaráðherra: Hvaða
    tækifæri sér hún í þessum nýju sjávartengdu atvinnugreinum <ns:bjalla/> og
    hvernig geta stjórnvöld skapað þeim skilyrði til að vaxa og dafna í sátt
    við nærsamfélagið?</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>