<?xml version="1.0" encoding="UTF-8"?>
<?dctm xml_app="Raeduskjal"?>
<ns:ræða embætti="atvvrh." frhr="0" id="r2026-09-10T21:45:29" skst="HKF" tegflm="R" tegr="R" xsi:schemaLocation="http://skema.althingi.is/skema http://skema.althingi.is/skema/althingi_raedur.xsd" xmlns:ns="http://skema.althingi.is/skema" xmlns:xs="http://www.w3.org/2001/XMLSchema" xmlns:xhtml="http://www.w3.org/1999/xhtml" xmlns:xsi="http://www.w3.org/2001/XMLSchema-instance">
  <!-- 2026-09-10 21:47:54 -->

  <ns:umsýsla fundur="3" lgþ="158" tími="2026-09-10T21:45:29">
    <ns:mál málsflokkur="A" málstegund="l" nr="1">
      <ns:málsheiti>fjárlög 2027</ns:málsheiti>
    </ns:mál>
  </ns:umsýsla>

  <ns:ræðutexti>
    <ns:mgr>Forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir fyrirspurnina og tek
    heils hugar undir það með honum að þessi atvinnugrein, eldi eða lagareldi,
    hefur verið eitthvað sem á síðustu árum hefur skipt sköpum, ekki síst
    fyrir byggðir Vestfjarða og líka Austfjarða. Hann nefnir sérstaklega og
    spyr um stórþörungaræktina. Ég er með slíkt mál og mun leggja það fram á
    næstu vikum um stórþörungarækt í sjó. Ég átti þess kost að sækja málþing á
    vegum Breiðar, nýsköpunarseturs á Akranesi, í liðinni viku þar sem einmitt
    var fjallað um þetta undir fyrirsögninni: Gull á grunnsævi, tækifæri í
    sjóþörungarækt. Það vakti sérstaklega aðdáun mína hve margir stórhuga
    frumkvöðlar víðs vegar um land eru komnir á fleygiferð í þessu máli. Og
    það er ekki seinna vænna að stjórnvöld komi með skýran ramma fyrir þessa
    starfsemi vegna þess að það sem stendur henni fyrir þrifum í núverandi
    umhverfi er að það gildir enginn lagarammi um hana. Við erum að tryggja
    það eins og við getum að við stöndum alla vega ekki í vegi fyrir þessum
    vaxtarbroddi sem þessi atvinnugreinin hefur alla burði til að vera og það
    bara innan skamms, ekki síst í þessum smærri byggðum og sveitarfélögum.
    Þannig að við erum að vinna með þetta.</ns:mgr>

    <ns:mgr>Síðan er ég líka að kynna mál, mun leggja fram mál, sem snýr að
    hafeldi og það er laxeldi utan fjarða í svona stórum djúpum kerfum úti á
    opnu hafi, nokkuð sem fyrir ekki svo löngu var talið algerlega ómögulegt
    hér við Íslandsstrendur vegna sjógangs. En tækninni fleygir fram og þetta
    er orðið eitthvað sem margir áhugasamir vilja fara að skoða. En þá þarf
    líka lagaramminn að vera til staðar og við þurfum að tryggja að það sé
    eitthvað til sem heitir rannsóknarleyfi og að það geti síðan leitt til
    einhvers og að þeir sem eru til í að leggja gríðarlega fjármuni í að skoða
    þetta, <ns:bjalla/> fái eins og hægt er einhvers konar tryggingu fyrir því
    að það verði eitthvað úr því. Þetta eru þessi tvö stóru verkefni sem ég
    treysti á að ég fái stuðning fyrir, stuðning til að tryggja að þessi
    umgjörð verði til <ns:bjalla/> samhliða uppbyggingunni en að við sitjum
    ekki eftir af því að það getur valdið skaða.</ns:mgr>
  </ns:ræðutexti>
</ns:ræða>